„Ég ætla ekki að blanda mér efnislega í deilur Samherja og RUV enda þekki ég ekki málið svo vel.“ Þannig hefst Facebook færsla Brynjars Níelssonar þar sem hann blandar sér í mál Samherja og RUV.
Styr hefur staðið um Samherja síðan Samherji birti myndband þar sem „skýrsla“ Verðlagsstofu skiptaverðs er sögð ekki til. Viðbrögð RUV voru hörð og sögðu skýrsluna vissulega til. Síðan er komið í ljós að umrædd skýrsla er líklega Excel skjal. Í seinni myndbandi Samherja kom Helgi Áss Grétarsson, lögfræðingur, fyrir og útskýrði muninn á skýrslu og Excelskjali. Í megindráttum er í skýrslu einhverskonar efnisleg niðurstaða höfundar, en því er ekki að skipa í Excelskjali.
Brynjar segist þekkja muninn á skýrslu „með efnislegri niðurstöðu stjórnvalds“ og Excelskjals með tölulegum upplýsingum:
En það sem mér finnst merkilegast í ölli þessu máli eru viðbrögð fjölmiðlamanna við myndböndum Samherja þar sem fram kemur gagnrýni á RUV vegna gerð þessa fræga Kastljóssþátts. Síðan hvenær mega menn sem sakaðir eru um refsiverða háttsemi ekki bera hönd fyrir höfuð sér?
Brynjar bendir svo á að í umræddum myndböndum gagnrýna Samherjamenn vinnubrögð RUV og er RUV sagt draga rangar ályktanir af gögnum málsins.
Nei, þá rísa fjölmiðlamenn upp á afturfæturna og líta a alla gagnrýni sem aðför og árásir og gott ef þetta var ekki einnig aðför að lýðræðinu í landinu. Sýnist að fjölmiðlamenn haldi að þeir eigi að vera einir stikkfrí frá allri gagnrýni. RUV á auðvitað bara að svara þessari gagnrýni í stað þess að gera sig að fórnarlambi. Kæmust sjálfsagt langt með það með því að afhenda þessa þriggja síðna skýrslu Verðlagsstofu skiptaverðs með efnislegri niðurstöðu undirritaðri af forstjóranum, sem þeir fullyrða opinberlega að sé til.