fbpx
Miðvikudagur 27.nóvember 2024

Erlent jóladagatal fimmta árið í röð

Danskt jóladagatal í ár

Ari Brynjólfsson
Föstudaginn 1. desember 2017 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jóladagatal Ríkissjónvarpsins hefur verið fastur liður á heimilum íslenskra barna í nánast þrjá áratugi. Jóladagatöl eiga sér langa sögu en eru tiltölulega nýtt fyrirbæri hér á landi samanborið við hin nágrannalöndin. Sænska ríkisútvarpið byrjaði með jóladagatal í útvarpi árið 1957 og 1960 í sjónvarpi. Danir komu fljótlega á eftir með jóladagatal árið 1962. Norðmenn hófu útsendingar árið 1970 en við Íslendingar ekki fyrr en árið 1988. Ekkert jóladagatal var sýnt árið 1989, en síðan 1990 hefur þessi siður fests sig í sessi.

Umfjöllun DV um fyrsta jóladagatal Sjónvarpsins.
Umfjöllun DV um fyrsta jóladagatal Sjónvarpsins.

Fyrstu árin fengu íslensk börn alltaf nýtt íslenskt jóladagatal á hverju ári, var það ekki fyrr en árið 1993 sem sýnt var erlent jóladagatal, en þá voru það Jól í Múmíndal. Tveimur árum síðar var svo fyrsta endursýningin þegar Á baðkari til Betlehem var sýnt aftur fimm árum eftir frumsýninguna. Sama dagatal var svo sýnt aftur 2004. Fjögur jóladagatöl hafa verið sýnd þrisvar, fyrir utan Á baðkari til Betlehem eftir Sigurð G. Valgeirsson & Sveinbjörn I. Baldvinsson, eru það Jól á leið til jarðar eftir Friðrik Erlingsson & Sigurð Örn Brynjólfsson, Stjörnustrákur eftir Sigrúnu Eldjárn og Hvar er Völundur? með Gunna og Felix eftir Þorvald Þorsteinsson. Hér má sjá lista yfir jóladagatöl RÚV, DV hefur fengið
listann staðfestan frá safnadeild RÚV.

Síðustu ár hafa jóladagatölin komið frá hinum Norðurlöndunum, byrjaði það með norsku jóladagatali árið 2010, var það þá gert vegna niðurskurðar. Fyrir utan árið 2012 þegar Hvar er Völundur? var endursýndur og árið 2014 þegar RÚV frumsýndi íslenskt 13 daga jóladagatal tileinkað jólasveinunum samhliða dönsku jóladagatali, hefur RÚV ekki sýnt íslensk jóladagatöl. Norrænu jóladagatölin hafa fengið nokkra gagnrýni, mest árið 2015 þegar það var sýnt textað en ekki talsett. Árið 2017 er engin undantekning á norrænum jóladagatölum, í kvöld byrjar danska jóladagatalið Snæholt, eða Snøfall. Fjallar það um Selmu, 9 ára munaðarlausa stúlku sem á þó ósk heitasta að eignast alvöru fjölskyldu og biður hún því jólasveininn um hjálp.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Umpólun Snorra?

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Endurheimta búnað úr mathöllinni sem aldrei varð

Endurheimta búnað úr mathöllinni sem aldrei varð
Fókus
Fyrir 4 klukkutímum

Líf Önnu Karenar breyttist í október 2023 – Spyr sig hvað hún hefur kostað íslenska skattgreiðendur

Líf Önnu Karenar breyttist í október 2023 – Spyr sig hvað hún hefur kostað íslenska skattgreiðendur
Eyjan
Fyrir 5 klukkutímum

Sakar Sigmund Davíð um lygar – „Já, þetta er hörð ásökun“

Sakar Sigmund Davíð um lygar – „Já, þetta er hörð ásökun“
Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Starri skipti um pólitískan kúrs eftir sjálfsvíg systur sinnar

Starri skipti um pólitískan kúrs eftir sjálfsvíg systur sinnar
Fókus
Fyrir 7 klukkutímum

Magnús Hlynur miður sín þegar hann kom inn á N1 á Ártúnshöfða í morgun

Magnús Hlynur miður sín þegar hann kom inn á N1 á Ártúnshöfða í morgun
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Össur: Snorri er kjarklítill og flýr af hólmi

Össur: Snorri er kjarklítill og flýr af hólmi