Fram að þessu hafa rúmlega 5.800 Svíar látist af völdum COVID-19 en það er mun hærri dánartíðni en í nágrannaríkjunum Noregi, Finnlandi og Danmörku þar sem dánartíðnin er þriggja stafa tala. Löfven segir að sænska aðferðin sé sú besta til að takast á við veiruna.
Í samtali við Dagens Nyheter sagðist hann telja að sú aðferðafræði sem Svíar hafa notað sé sú rétta til að vernda einstaklinga og takmarka útbreiðslu veirunnar.
„Það sem hefur verið einna mest rætt og það sem við gerðum öðruvísi í Svíþjóð er að við lokuðum ekki skólum. Núna eru ansi margir sem telja að við höfum farið rétta leið í þessu.“
Svíar hafa aðallega treyst á að fólk virti tilmæli og reglur um félagsforðun og settu ekki hömlur á samkomuhald né settu dvalarheimili aldraðra og sjúkra í einangrun eins og hefur verið gert víða.
Samhliða því að slakað hefur verið á kröfum um félagsforðun víða í Evrópu hefur smitum fjölgað en í Svíþjóð hefur þróunin verið í hina áttina, smitum og dauðsföllum hefur farið fækkandi á undanförnum vikum.
Löfven varði einnig þá ákvörðun heilbrigðisyfirvalda að skipa ekki fyrir um notkun andlitsgríma á almannafæri.
„Það sem er enn mikilvægt er félagsforðun, skimanir og rakning. Það verður að vera aðaláherslan í að draga úr smitum.“