Neyðarúrræði á vegum Reykjavíkurborgar og félagsmálaráðuneytisins fyrir heimilislausar konur verður framlengt. Þetta kemur frama í tilkynningu frá velferðarsviði borgarinnar.
Úrræðinu var komið á í apríl vegna áhrifa heimsfaraldurs kórónuveirunnar þar sem ekki var hægt að tryggja tveggja metra reglu í Konukoti.
Ákveðið var að tvískipta hópnum í Konukot og nýja úrræðið svo hver og ein kona fengi meira rými.
Hópur heimilislausra kvenna sendi tilkynningu á fjölmiðla í morgun þar sem bent var á til stæði að loka úrræðinu.
„Neyðarúrræðið er rekið með fjárframlagi frá félagsmálaráðuneytinu og er opið konum alls staðar að af landinu. Velferðarsvið á nú í viðræðum við eiganda hússins um áframhaldandi rekstur til skamms tíma og hefur fengið vilyrði fyrir áframhaldandi fjárframlagi frá félagsmálaráðuneytinu,“ segir í tilkynningunni, en kostnaður vegna neyðarúrræðisins er 9 milljónir króna á mánuði.