fbpx
Miðvikudagur 24.júlí 2024
Eyjan

Spyr hvort að stjórnarflokkarnir telji Samherja-skýrslu ekki eiga erindi við almenning

Jón Þór Stefánsson
Föstudaginn 14. ágúst 2020 17:45

Samsett mynd - Hanna Katrín og Samherji

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hanna Katrín Friðriksson, þingmaður Viðreisnar skrifaði pistil sem birtist á Vísi í dag. Þar ræddi hún um skýrslu sem að Sjávarútvegsráðherra átti að láta vinna, sem hefur enn ekki látið sjá sig. Um er að ræða skýrslu um samanburð á greiðslum Samherja fyrir veiðirétt í Namibíu og á Íslandi. Hún bendir á á að sex þingmenn Sjálfstæðisflokksins hefðu kosið gegn beiðninni um skýrsluna á sínum tíma, þar á meðal fjármálaráðherra.

„Ríflega hálft ár er nú frá því að Alþingi samþykkti tillögu Viðreisnar um að sjávarútvegsráðherra léti vinna fyrir þingið skýrslu um samanburð á greiðslum Samherja fyrir veiðirétt í Namibíu og á Íslandi. Að beiðninni stóðu jafnframt þingmenn Samfylkingar og Pírata. Alla jafna eru skýrslubeiðnir samþykktar einróma, enda mikilvægur hluti af eftirlitshlutverki Alþingis – en ekki þessi beiðni. Sjö þingmenn stjórnarflokkanna kusu gegn beiðninni, einn frá Framsókn og sex frá Sjálfstæðisflokknum, þeirra á meðal fjármálaráðherra. Það er ekki á hverjum degi sem ráðherra leggur á þann hátt stein í götu þingmanna sem hyggjast sinna eftirlitshlutverki sínu.“

Hanna segir að ráðherra hafi haft tíu vikur til að skila skýrslunni, en þær séu nú orðnar 26. Hún segir að samkvæmt sínum heimildum sé skýrslan til, en að enginn fái aðgang að henni fyrr en hún verði kynnt.

„Skýrslubeiðnin var nú samt samþykkt og í kjölfarið var Hagfræðistofnun Háskóla Íslands falið að vinna skýrsluna. Tilgangurinn var í sem stystu máli sá að varpa ljósi á það hvort gjaldið sem útgerðin greiðir fyrir aðgang að fiskveiðiauðlindinni á Íslandi sé sambærilegt við það sem útgerðin greiðir á erlendum hafsvæðum. Að gefnu tilefni var samburðarhafsvæðið við Namibíu að þessu sinni.

Reglum samkvæmt hefur viðkomandi ráðherra 10 vikur til að skila skýrslum, eftir að beiðni um slíkt hefur verið samþykkt. Nú eru vikurnar orðnar 26 og það er ekkert að frétta. Hagfræðistofnun hefur reyndar fyrir þó nokkru síðan lokið vinnu sinni. Samkvæmt mínum upplýsingum lá skýrslan um tíma í sjávarútvegsráðuneytinu þar til henni var skilað til þingsins, eftir að sumarfrí hófust. Löngu eftir að 10 vikna fresturinn var liðinn. Nú bíður skýrslan undir stól og enginn fær aðgang að henni fyrr en formaður atvinnuveganefndar, Lilja Rafney Magnúsdóttir, boðar til nefndarfundar svo hægt sé að gera skýrsluna opinbera. Það verður að segjast að nefndarfundir hafa í gegnum tíðina verið boðaðir af mun minna tilefni en þessu.“

Þar sem að Samherji hefur verið mikið í umræðunni í vikunni segir Hanna að atburðarásin verði meira sláandi og spyr hvort að stjórnarflokkunum þyki hún ekki eiga erindi til almennings

„Nú þegar málefni Samherja eru enn og aftur í deiglunni verður þessi atburðarás enn meira sláandi og sú spurning enn áleitanari en áður, hvort stjórnarflokkunum þyki efni skýrslunnar ekki eiga erindi í umræðuna. Er enn ein skýrslan undir stól þeirra kannski sumargjöfin í ár?“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Forsætisráðherra Grænlands heimsótti íslensku gullvinnsluna

Forsætisráðherra Grænlands heimsótti íslensku gullvinnsluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Iðjulaus Brynjar fer í búðina oft á dag – Þetta er ástæðan

Iðjulaus Brynjar fer í búðina oft á dag – Þetta er ástæðan