„Donald Trump er skíthræddur við Kamala Harris.“
Sagði Nicolle Wallace þáttastjórnandi hjá MSNBC á miðvikudaginn og bætti við:
„Af 11 konum, sem komu til greina sem varaforsetaefni, er Kamala Harris sú sem hann hræðist mest. Sem fyrrum saksóknari og ríkissaksóknari í Kaliforníu er Kamala Harris nær óttalaus þegar kemur að valdamiklum mönnum. Hún er eins og varðhundur.“
David Axelrod, fyrrum ráðgjafi Barack Obama, fyrrum forseta, er á sama máli:
„Ég er viss um að Mike Pence, varaforseti, skelfur á beinunum. Við vitum líka öll hvernig forsetanum líður í návist valdamikilla kvenna. Kamala Harris er ekki bara valdamikil kona, hún er svört valdamikil kona.“
Sagði hann í samtali við útvarpsstöðina NPR.
Trump hefur á fréttamannafundum, viðtali og í nokkrum tístum á Twitter fullyrt að Kamala Harris sé andstæðingur sem hentar honum vel. Hann segist aðallega vera hissa á hversu auðvelt það verði nú að sigra Joe Biden og ná þannig endurkjöri.
En Nicolle Wallace segir að það sé auðvelt að sjá í gegnum viðbrögð Trump:
„Ef Trump væri ekki áhyggjufullur myndi hann ekki tala svona mikið um Kamala Harris og hann myndi ekki kalla hana öllum þessum ljótu nöfnum.“
En hvort sem Trump er hræddur við Kamala Harris eður ei þá breytir það ekki þeirri staðreynd að þau voru eitt sinn vinir, eða að minnsta kosti pólitískir bandamenn. Trump og fjölskylda hans styrktu framboð hennar fjárhagslega 2011 og 2013 þegar hún sóttist eftir embætti ríkissaksóknara í Kaliforníu. Washington Post segir að skýringin á þessu sé einföld:
„Þá var Donald Trump Demókrati. Hann studdi einnig Bill og Hillary Clinton, bæði félagslega og fjárhagslega.“
Segir blaðið.