Heimsþekkt vörumerki á góðu verði – Sendum frítt hvert á land sem er
„Við hjá A4 leggjum metnað okkar í það að vera í fararbroddi á sviði skrifstofu-, skóla-, gjafa-, föndur- og hannyrðavara og leggjum áherslu á góða og trausta þjónustu við viðskiptavini,“ segir Vilhjálmur Sturla Eiríksson, framkvæmdastjóri sölusviðs. Hjá fyrirtækinu starfa um 100 manns.
Hjá A4 færðu allar helstu skrifstofu- og rekstrarvörurnar fyrir fyrirtækið. Þar má sem dæmi nefna pappír, blek og tóner í helstu gerðir prentara. Einnig má finna hjá A4 úrval skrifstofutækja eins og pappírstætara, prentara og plöstunar- og innbindivélar.
Vilhjálmur segir: „Við erum stolt af því að geta boðið upp á heimsþekkt vörumerki sem eiga það sameiginlegt að vera öll í háum gæðaflokki. Í skrifstofuvörum má nefna Acco, 3M, Faber-Castell, Novus, Durable og Stabilo. Við hjá A4 leggjum metnað í að bjóða gæðavörur í miklu úrvali á góðu verði. Við skorum á viðskiptavini að gera verðsamanburð“.
A4 leggur áherslu á góða þjónustu hvort sem viðskiptavinir kjósa að hafa samband við fyrirtækjasölu og fá vöruna senda til sín, sækja í vöruhús, versla í vefverslun eða koma við í einni af sjö verslunum fyrirtækisins um land allt. A4 rekur fjórar verslanir á höfuðborgarsvæðinu auk verslana á Akureyri, Egilsstöðum og Selfossi.
Fyrirtæki um allt land geta valið að fá vöruna senda án kostnaðar ef keypt er fyrir meira en 20.000 krónur og fylgir þá sætur glaðningur með. Allar pantarnir sem berast fyrir kl. 10.00 að morgni til eru sendar samdægurs.
Hjá fyrirtækjasölu A4 starfa söluráðgjafar með áratuga reynslu sem kappkosta að mæta þörfum fyrirtækja. Fyrirtækjasalan er opin alla virka daga frá kl. 08.00 til 17.00. Síminn í fyrirtækjasölu er 580-0000 og netfangið er panta@a4.is. Söluráðgjafar fyrirtækjasölu heimsækja viðskiptavini sé þess óskað. Vefverslunin er alltaf opin. Þar getur þú safnað í körfu, vistað og sent inn pöntunina þegar þér hentar. Vefverslun A4 er mikið notuð meðal viðskiptavina um land allt.