Ástin skýtur örvum sínum í hjörtu fólks alla daga, stundum blossar upp sameiginlegt ástarbál, samband og sambúð með öllu tilheyrandi: samkomum, sólarlandaferðum, börnum, óhreina tauinu, samfélagsmiðlum, ást og hamingju.
Þessi þekktu pör opinberuðu samband sitt á árinu. DV óskar þeim innilega til hamingju með ástina og hvort annað.
Skapandi saman Íris Björk Tanya Jónsdóttir, eigandi Vera Design, og Vilhelm Norðfjörð njóta lífsins saman.
Í vellystingum saman Róbert Wessman, forstjóri Alvogen, og unnusta hans, Misska Kisska, nutu lífsins saman á Barbados um jólin.
Slá í takt saman Hanna Kristín Skaftadóttir, frumkvöðull og viðskiptafræðingur og Sindri Aron Viktorsson læknir trúlofuðu sig um jólin.
Tengd saman Hödd Vilhjálmsdóttir almannatengill og Jón Páll Pálsson kvikmyndatökumaður eru vel tengd saman.
Í takt saman Friðrik Karlsson, tónlistarmaður og einn af meðlimum Mezzoforte, og Laufey Birkisdóttir, snyrtifræðingur og eigandi Leilu Boutique, eru flott saman.
[[3C8B0B8023]]
Á flugi saman Gríma Björg Thorarensen flugfreyja og Skúli Mogensen, forstjóri og eigandi WOW air, eru fljúgandi flott saman.
Í sporti saman Landsliðskonan Sara Björk Gunnarsdóttir og Alexander Jura, sjúkraþjálfari hjá Wolfsburg, kynntust í gegnum íþróttina, en Sara spilar með Wolfsburg.
Í stíl saman Gyða Guðmundsdóttir læknir og Hjörtur Hjartarson fréttamaður eru röndótt og glæsileg saman.
Framinn vís saman Andrea Röfn Jónsdóttir, fyrirsæta og verslunarstjóri, og Arnór Ingvi Traustason, landsliðsmaður í fótbolta, eru ung og ástfangin.
Í viðskiptalífinu saman Ríkharður Daðason, hagfræðingur og fjárfestir, og Edda Hermannsdóttir, samskiptastjóri Íslandsbanka, hafa áhuga á viðskiptum og fótbolta saman.