6IX9INE er vinsæll rappari sem er, auk rappsins, hvað þekktastur fyrir að vera dæmdur kynferðisafbrotamaður. Árið 2015 játaði rapparinn að hafa notað barn í tónlistarmyndbandi þar sem kynlífsathafnir áttu sér stað. Barnið sem um ræðir var einungis 13 ára gamalt og var nakið í myndbandinu. Á þessum tíma var 6ix9ine orðinn 18 ára gamall en hann hefur haldið því fram að hafa einungis verið 17 ára brotið átti sér stað.
Fyrir nokkrum dögum birti Eggert myndband þar sem hann og 6IX9INE spiluðu saman. Eftir að Eggert birti myndbandið fékk hann víða góð viðbrögð. Á Facebook hópnum „Tölvuleikjasamfélagið“ fékk Eggert þó ekki jafn góð viðbrögð. „Margir þarna voru mjög óánægðir með myndbandið. Sumir komu með góðar athugasemdir og ráðlögðu mér að vinna ekki með þessum manni aftur, ég skil það,“ segir Eggert.
„Á miðvikudaginn fékk ég símtal frá yfirmanni mínum. Hann segir: Mér finnst leiðinlegt að segja þér þetta en hætt hefur verið við þáttinn þinn vegna myndbandsins með 6IX9INE.“
„Ég varð mjög reiður og uppstökkur,“ segir Eggert og birtir myndband af viðbrögðum sínum rétt eftir símtalið. Þar segist hann vera grátandi af reiði. Eggert sagði við stjórnendur Stöðvar 2 eSport að hann hefði engan áhuga á að vinna með þeim á árinu. „Þau sögðu að þau myndu hugsanlega vinna með mér ef ég myndi gefa frá mér opinbera afsökunarbeiðni og taka myndbandið út. Alls ekki,“ sagði Eggert.
Hægt er að sjá myndbandið sem Eggert setti á Youtube hér að neðan.