fbpx
Miðvikudagur 24.júlí 2024
Eyjan

Vill fresta lokun fangelsis- Enginn í afplánun á Akureyri sökum sumarleyfa

Erla Dóra Magnúsdóttir
Fimmtudaginn 16. júlí 2020 16:16

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir Mynd: Valli

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra, hefur óskað eftir því við fangelsismálastjóra að framkvæmd lokunar á fangelsinu á Akureyri verði frestað til 15. september. Þetta kemur fram í færslu Áslaugar á Facebook.

Áslaug kveðst hafa óskað eftir því við ríkislögreglustjóra að lagt verði mat á hugsanlegan viðbótarkostnað lögreglunnar á Akureyri vegna fyrirhugaðrar lokunar fangelsisins, en slíkt mat mun ekki liggja fyrir við lok mánaðar þegar lokunin átti upphaflega að eiga sér stað.

„Þessi úttekt mun ekki liggja fyrir þegar lokunin á að koma til framkvæmda í lok mánaðarins. Í ljósi þess og í framhaldi funda með hagaðilum fyrir norðan sl. þriðjudag hef ég óskað eftir því við fangelsismálastjóra að framkvæmd lokunarinnar á fangelsinu á Akureyri verði frestað til 15. september. Enginn afplánar nú í fangelsinu vegna sumarleyfa.“

Áslaug segir að markmið hennar sé þó óbreytt, það er að tryggja velferð fanga og eins góða þjónustu og hægt sé að veita, með þó tilliti til hagkvæmni í rekstri fangelsiskerfisins til lengri tíma og styttingu boðunarlistans.

„Á sama tíma verður einnig að búa þannig um hnútana að almenn löggæsla á Norðurlandi eystra verði ekki fyrir skerðingu vegna lokunarinnar.“
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Bandarísk stjórnmál: Biden vill koma böndum á Hæstarétt Bandaríkjanna

Bandarísk stjórnmál: Biden vill koma böndum á Hæstarétt Bandaríkjanna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hildur hnyklar brýnnar í áframhaldandi ritdeilu – „Ég trúi varla að ég þurfi að rita enn eina grein­ina“

Hildur hnyklar brýnnar í áframhaldandi ritdeilu – „Ég trúi varla að ég þurfi að rita enn eina grein­ina“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur