Haft er eftir honum að um léleg vinnubrögð sé að ræða og margoft sé búið að benda á hættuna sem skapist vegna malbiks sem þessa.
„Gæðaeftirlitið er ekki í lagi og það er ekki farið eftir uppskriftinni. Þetta eru að mínu viti léleg vinnubrögð. Þetta verður eins gler. Þegar það blotnar þá verður þetta glerhált. Þetta verður mjög lúmskt. Þetta er gert þegar menn búa til hálkusvæði í tengslum við ökuskóla erlendis, þá setja menn extra mikið bik og úða svo vatni og þá verður þetta flughált.“
Er haft eftir honum.
Það var Loftorka Reykjavík sem sá um malbikun vegarkaflans og efnið kom frá Malbikunarstöðinni Höfða. Fréttablaðið hefur eftir Ásberg K. Ingólfssyni, framkvæmdastjóra Malbikunarstöðvarinnar Höfða að stöðin hafi afgreitt rétt efni.
„Við uppfylltum þær kröfur sem komu frá verkkaupa og hann óskaði eftir. Framleiðsluniðurstöður okkar sýna það.“
Sagði hann. Hann sagði jafnframt að steinastærð hafi verið breytt frá hinu hefðbundna en það eigi ekki að hafa teljandi áhrif, uppskriftin eigi að vera stöðluð.
Ekki náðist í talsmenn Loftorku Reykjavík.
G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar, sagði til rannsóknar hvað hafi farið úrskeiðis.
„Mér skilst að allar mælingar í malbikunarstöðinni hafi verið innan marka. Eigi að síður er malbikið of hált þegar það er lagt út. Það er ekki hægt að segja á þessari stundu hvort eitthvað hafi brugðist í framleiðslunni og það er eitt af því sem þarf að skoða gaumgæfilega.“
Hann sagði að Vegagerðin væri veghaldarinn og beri endanlega ábyrgð.
„En verktakinn skilar ekki því sem við viljum fá samkvæmt útboðsskilmálum þannig að þeir bera ábyrgð á því. Við þurfum hins vegar að vita af hverju þetta verður svona.“