fbpx
Fimmtudagur 15.ágúst 2024
Fréttir

„Hola fólki niður í fullkomlega ógeðslegu og óboðlegu húsnæði“ – Mörg hundruð börn í svipuðum aðstæðum

Tobba Marinósdóttir
Mánudaginn 29. júní 2020 09:02

Sólveig Anna og Viðar.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Við þekkjum þessi heimilisföng. Þetta eru óboðlegir mannabústaðir og það hefur fjallaðu um þetta í íslensku samfélagi í mörg ár,“ sagði Viðar Þorsteinsson framkvæmdastjóri Eflingar í viðtali við Morgunútvarp Rásar 2. Umræðuefnið var húsbrunin við Bræðraborgarstíg og fyrir helgi þar sem þrír létust og þrír aðrir liggja þungt haldnir.

Hundruðir barna búa við skelfilegar aðstæður 

Viðar segir íslenskt samfélag vel vita af fjölda húsa þar sem fólk í þúsunda tali býr við skelfilegan aðbúnað. „Börn sem að búa þar, jafnvel hundruðum saman,“ segir Viðar. Oft sé um iðnaðarhúsnæði að ræða með óboðlegri hreinlætisaðstöðu og brunavörnum.

Hann segir ítrekað búið að fjalla um skelfilega aðstöðu í húsinu sem bruninn átti sér stað í. Meðal annars hafi Stundin fjallað ítarlega um það fyrir fimm árum með engum sjáanlegum árangri og Kveikur hafi gert úttekt á starfsmannaleigum þar sem húsið kom við sögu en skelfilegar aðstæður fólksins hafi ekki breyst.

Á meira skylt við mansal 

„Þetta eru allt saman þekktir aðilar sem er einfalt mál er að fletta upp í opinberum skrám,“ segir Viðar aðspurður um hverjir eigi húsið. Hann segist þekkja til eigandanna í samhengi við slæma meðferð á starfsfólki.

Viðar segir Eflingu hafa síðustu ár færst í aukana að fylgja eftir slæmum aðstæðum félagsmanna sinna fyrir utan vinnustaðinn þar sem komið er á mjög óheilbrigðu sambandi. „Fólk er dregið inn í aðstæður sem ég myndi treysta mér til að segja að eigi meira skylt við mansal en heldur en eðlilegt ráðningasamband. Þarna er verið að tengja saman ráðningasamkomulag og að hola fólki niður í fullkomlega ógeðslegu og óboðlegu húsnæði. Þetta er svo samnýtt til þess að gera starfsmanninn algerlega berskjaldaðan.“ Hann segir starfsmanninn verða algerlega háðan atvinnurekandanum því ef hann kvarti undan launum þá sé hægt að hóta viðkomandi að henda honum út úr húseigninni og öfugt.

Engin refsing fyrir launaþjófnað 

„Þetta hefur verið tikkandi tímasprengja árum saman. Þetta kemur ekki á óvart því miður.“ Viðar segir húsnæði í ætt við það sem brann á Bræðraborgarstíg vera mjög víða og ekkert sé gert.

Viðar gagnrýnir hið opinberlega harðlega. „Það eru engar refsingar fyrir að ástunda launaþjófnað á Íslandi.“ Hann vísar í ósamræmi í kerfinu og segir „Ólíkt því að stela samloku úr 10-11,“segir Viðar og vísar í nýlegan dóm þar sem kona hlaut 60 daga skilorðsbundinn dóm fyrir að stela samloku fyrir nokkur hundruð krónur.

Viðar segist binda vonir við að félagsmálaráðherra láti til sín taka í málaflokknum. „Ég vil hvetja ráðherra til þess að hlusta frekar á heilbrigða skynsemi og á samvisku sína frekar en kröfur sérhagsmunasamtaka í þessu málum og innleiða almennilegar refsi og sektarheimildir.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Dóttir Musk tætir í sig heimsþekktan ævisöguritara hans – „Það er andskotans brandari“

Dóttir Musk tætir í sig heimsþekktan ævisöguritara hans – „Það er andskotans brandari“
Fréttir
Í gær

Lögregla kölluð til eftir skírn í Hallgrímskirkju – „Ég er mjög hrædd því ég veit ekki hvað hann gerir næst“

Lögregla kölluð til eftir skírn í Hallgrímskirkju – „Ég er mjög hrædd því ég veit ekki hvað hann gerir næst“
Fréttir
Í gær

Sóley segir orðatiltækið „svolítið OCD“ grafa undan skilningi á þráhyggju og áráttu

Sóley segir orðatiltækið „svolítið OCD“ grafa undan skilningi á þráhyggju og áráttu
Fréttir
Í gær

Sparaði 12 milljónir á tveimur árum en íbúðin hafði á sama tíma hækkað um 18 milljónir

Sparaði 12 milljónir á tveimur árum en íbúðin hafði á sama tíma hækkað um 18 milljónir
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þingfesting í stóra fíkniefnamálinu – Nístandi kvíði sakborninga sem óttast afhjúpun og smánun

Þingfesting í stóra fíkniefnamálinu – Nístandi kvíði sakborninga sem óttast afhjúpun og smánun
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kom starfsmanni Keflavíkurflugvallar í opna skjöldu – Sjáðu myndina

Kom starfsmanni Keflavíkurflugvallar í opna skjöldu – Sjáðu myndina