BBC skýrir frá þessu. Í ellefu ríkjum, þar á meðal Svíþjóð, hefur faraldurinn sótt í sig veðrið og er um „töluverða aukningu“ að ræða segir Hans Kluge svæðisstjóri WHO í Evrópu. BBC hefur eftir honum að ef ekki verði brugðist við geti þolmörk heilbrigðiskerfisins í álfunni verið þanin til hins ýtrasta.
„Vikum saman hef ég talað um hættuna á að faraldurinn blossi upp á nýjan leik þegar ríkin draga úr hömlum. Í mörgum Evrópuríkjum er þetta nú orðið að veruleika.“
Er haft eftir Kluge sem sagði einnig að WHO vænti þess að smitum fækki yfir sumarið.
„En við neyðumst til að undirbúa okkur undir haustið þegar COVID-19 kemur á sama tíma og hin hefðbundna inflúensa, lungnabólga og aðrir sjúkdómar sem eru á sveimi í samfélaginu.“
Sagði hann um komandi mánuði.