fbpx
Mánudagur 25.nóvember 2024
Fókus

Sakamál: Blóðbað á herstöðinni í Keflavík

Auður Ösp
Laugardaginn 27. júní 2020 20:05

Ashley Turner ásamt bróður sínum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hin bandaríska Ashley Turner var tvítug og flugliði í þyrlubjörgunarsveit Keflavíkurflugvallar, þegar hún var myrt á hrottalegan hátt í ágúst 2005. Grunur féll strax á samstarfsmann hennar, annan hermann  á varnarliðssvæðinu, sem áður hafði verið sakaður um að stela frá henni peningum. Þrátt fyrir fjölda sannana var hann sýknaður fyrir rétti. Málið er enn í dag óupplýst.

 Ashley Turner fæddist í Frederick í Mary­ land­fylki árið 1985, en foreldrar hennar, þau Law­rence og Lisa Turner, voru bæði í sjóhernum. Ashley fylgdi í fótspor þeirra og gekk til liðs við flugher Banda­ríkjanna ári eftir að hún út­ skrifaðist úr menntaskóla.

Að lokinni herþjálfun starf­aði hún í tæknideild björg­unarsveitar varnarliðsins. Hún þótti góður hermaður og ferill hennar var til fyrir­myndar. Hún var mikill dýra­vinur og stefndi á nám í dýralækningum.

Ashley Turner ásamt móður sinni Lisu

Stal þrjátíu þúsund krónum

Bandaríkjamaðurinn Calvin Eugene Hill starfaði einnig sem hermaður á varnarliðs­svæðinu í Keflavík á þessum tíma. Hann bjó í sömu blokk og Ashley. Átta mánuðum áður en Ashley var myrt komu upp deilur á milli hennar og Calvins, eftir að í ljós kom að Calvin og annar hermaður höfðu stolið kredit­ korti og peningum af henni. Ránsupphæðin var rúmlega 30 þúsund krónur.

Um það leyti sem morðið var framið var Calvin að bíða eftir að fara fyrir rétt vegna þjófnaðarins. Þrátt fyrir þjófnaðinn og deilurnar var Ashley ekki boðið að skipta um gististað og þurfti því að búa áfram í sama húsi og Calvin.

Fyrirhugað var að hún myndi bera vitni gegn honum nokkrum dögum síðar, en hin­ um hermanninum hafði verið vísað úr landi. Á þessum tíma átti Calvin í ástarsambandi við Vannee Youbanphout, ís­lenskan ríkisborgara af taí­lenskum ættum.

Umfjöllun DV á sínum tíma.

Blóð upp um alla veggi

Atburðarás sunnudags­ kvöldsins 14. ágúst 2005 er óljós. Seint um kvöldið fundu varnarliðsmenn Ashley, þar sem hún lá í blóði sínu í sófa í stigagangi á fyrstu hæð „maurablokkarinnar“ svo­ kölluðu.

Hún var meðvitundarlaus og hafði verið stungin marg­sinnis í höfuð og háls og var með margvíslega áverka um allan líkamann. Staðurinn bar merki þess að mikil átök hefðu átt sér stað: Blóð var upp um alla veggi og gólfið, eins og fram kom í frétt DV um málið á sínum tíma.

Varnarliðsmenn hringdu í herlögregluna og rokið var með Ashley á hersjúkrahúsið á svæðinu, en það var um seinan. Hún var úrskurðuð látin á staðnum.

Með blóðblett á skónum

Grunur féll strax á Calvin Eu­gene Hill. Þegar herlögreglan bankaði upp á hjá honum var hann enn í herbergi sínu og hafði ekki reynt að komast undan. Á öðrum skónum hans var blóðblettur.

Calvin Eugene Hill var leiddur fyrir rétt í Bandaríkjunum.

Fyrr um kvöldið hafði Calv­in verið með kærustu sinni. Hann eldaði handa henni kvöldmat og þau settust svo upp í sófa til að horfa á bíó­mynd.  Við yfirheyrslur hjá lög­reglu sagði kærastan að Calvin hefði farið út úr íbúðinni á meðan myndin var í gangi, og sagði að hann væri að fara að hitta yfirmann sinn. Þegar hann kom til baka byrjaði hann strax að þvo fötin sín. Þá tjáði kærasta hans lögregl­unni að hnífur hefði horfið úr eldhúsinu á meðan Calvin var í burtu.

Bandarískir sérfræðingar voru sendir til landsins til að rannsaka vettvanginn, og eftir að í ljós kom að engir Íslendingar tengdust mál­inu, tók herinn yfir rannsókn þess. Calvin var fluttur á herstöð bandaríska hersins í Þýskalandi þar sem hann var áfram yfirheyrður. Hann var í kjölfarið ákærður fyrir morðið og ljóst var að hann ætti yfir höfði sér lífstíðardóm, eða jafnvel dauðarefsingu ef hann yrði fundinn sekur. Hann neitaði ávallt sök. Réttað var yfir honum fyrir herrétti í Bolling­herstöðinni í Washington í Bandaríkjun­um. Hann neitaði áfram sök, en játaði þó að hafa stolið frá Ashley.

Lögmenn Calvins héldu því fram við réttarhöldin að morðið hefði ekki verið rann­ sakað nægilega vel, og horft hefði verið fram hjá öðrum mögulegum gerendum. Einn af þeim sem lögmennirnir bentu á var kærasti Ashley, en hann átti yfir höfði sér dóm fyrir fíkniefnabrot, meðal annars fíkniefnasölu. Lögmennirnir sögðu Ashley hafa vitað af fíkniefnavanda sem hann glímdi við. Vísað var til fram­burðar vitna sem sögðust hafa séð Ashley og kærasta hennar rífast fyrir utan krá, kvöldið áður en morðið var framið.

Dómur fellur

Kviðdómur í málinu fundaði í rúmlega fimm klukkustundir áður en niðurstaðan lá fyrir. Kviðdómendur voru sam­mála um að lögreglan hefði ekki rannsakað nægilega vel hverjir aðrir hefðu hugsan­lega banað Ashley, heldur ein­göngu beint sjónum sínum að Calvin.

Calvin var því sýknaður af ákæru um morð, en hann var þó sakfelldur fyrir að hafa stolið frá Ashley. Hann var í kjölfarið lækkaður í tign innan hersins. Þegar dómur féll mátti heyra Calvin gefa frá sér hátt andvarp. Fjölskylda Ashley var hins vegar slegin.

„Við erum afar vonsvik­in,“ sagði Larry Turner, faðir Ashley í samtali við fréttamenn, skömmu eftir að dómur féll. „Ég er hræddur um samfélagið. Það gengur morðingi laus. Dóttir mín er dáin og einhver var valdur að dauða hennar.“

Bandarísk yfirvöld hafa gefið út að málið verði ekki rannsakað frekar. Ljóst er að ef engin ný sönn­ unargögn koma fram, sem benda til að einhver annar gæti verið morðingi Turner, eða staðfesta sekt Hills, mun engum verða refsað fyrir morðið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Nicole Kidman sögð ljúga um frægu ljósmyndina

Nicole Kidman sögð ljúga um frægu ljósmyndina
Fókus
Fyrir 2 dögum

Dularfull dagsetningardeiling sjónvarpsstöðvanna veldur netverjum heilabrotum – „Hvað er í gangi? Samruni?“

Dularfull dagsetningardeiling sjónvarpsstöðvanna veldur netverjum heilabrotum – „Hvað er í gangi? Samruni?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Jólalag Klöru verður einkennislag pakkasöfnunar í ár

Jólalag Klöru verður einkennislag pakkasöfnunar í ár
Fókus
Fyrir 4 dögum

Sölvi hugrakkari, opnari og vinafleiri en áður – Flestir þögðu þegar stormurinn gekk yfir

Sölvi hugrakkari, opnari og vinafleiri en áður – Flestir þögðu þegar stormurinn gekk yfir