Atli Guðnason leikmaður FH bjargaði FH frá neyðarlegu tapi í gær án þess að vera með í leiknum.
FH vann sigur á Þrótti í bikarnum og komst áfram í 16 liða úrslitin. Ef plön FH hefðu gengið eftir hefði liðið hins vegar tapað 3-0.
Pétur Viðarsson var á meðal varamanna í leiknum og var plan FH að hann myndi spila sínar fyrstu mínútur í sumar. Pétur var hins vegar í leikbanni eftir rautt spjald á síðustu leiktíð.
Pétur var rekinn af velli í bikarúrslitum og höfðu FH-ingar gleymt sér um stund. Pétur kom því ekki við sögu í leiknum.
„Hann (Pétur) átti að vera í hóp og fá mínútur. Þarna bjargaði Atli Guðna FH-ingum. Takk Atli Guðnason,“ sagði Hugi Halldórsson í Fantasy Gandalf.