fbpx
Miðvikudagur 24.júlí 2024
Eyjan

„Aktivisti VG“ vísar ásökunum Morgunblaðsins um spillingu á bug – „Töluvert langsótt“

Trausti Salvar Kristjánsson
Sunnudaginn 21. júní 2020 15:16

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Aktivistinn Þor­steinn V. Ein­ars­son hlaut á dögunum átta milljóna króna styrk frá Jafnréttissjóði, en hann heldur úti samfélagsmiðlinum Karlmennskan, hvar kastljósinu er varpað á birtingarmyndir karlmennskuhugmynda, en Þorsteinn vakti athygli fyrr á árinu er hann auglýsti eftir karlmönnum sem höfðu naugað eða beitt ofbeldi, til að fá innsýn inn í þeirra hugarheim og reynslu.

Styrkurinn sagður óviðeigandi

Þorsteinn er fyrrverandi varaþingmaður VG og var um það fjallað í Staksteinum Morgunblaðsins í gær, þar sem styrkurinn til hans var gerður tortryggilegur sökum tengsla hans við flokkinn.

Fyrirsögnin á Staksteinum er „Aktívisti VG fær framlag af skattfé“ og er sagt athyglisvert að varaþingmaður VG hefði þegið slíkan styrk til að skrifa pistla fyrir Stundina, en Þorsteinn verður í samstarfi með Stundinni með hlaðvarpsþætti. Sem kunnugt er hefur Stundin verið gagnrýnin á ritstjóra Morgunblaðsins, Davíð Oddson og þá hugmyndafræði sem hann stendur fyrir.

Í Staksteinum, sem jafnan eru ekki höfundamerktir, segir einnig:

„Senni­lega þykir ein­hverj­um skrýtið að það skuli vilja svo til að Katrín Jak­obs­dótt­ir, formaður VG, hafi út­hlutað varaþing­mann­in­um og Stund­inni þess­um gæðum. Ein­hverj­um gæti dottið í hug að þetta kynni jafn­vel að vera óviðeig­andi af ýms­um ástæðum, en senni­lega verða ekki marg­ir til að hafa orð á því, enda vitað að slíkt myndi kalla flóðbylgju fúkyrða frá „aktív­ist­um“, jafn­vel rík­is­styrkt­um, yfir viðkom­andi.“

Langsótt samsæriskenning

Þorsteinn vekur máls á Staksteinaskrifunum á Facebooksíðu sinni í dag, þar sem hann hrekur nokkrar staðreyndavillur og vísar allri meintri spillingu á bug.

Hann nefnir til dæmis að hann sé ekki lengur varaþingmaður VG og nefnir að forsætisráðherra komi hvergi að ferlinu við veitingu styrksins:

„Það telst víst ákveðin tegund viðurkenningar að vera umfjöllunarefni staksteina Moggans. Þessi samsæriskenning og ætluð spilling er töluvert langsótt samt:
1) Ég er ekki varaþingmaður og raunar hætti öllu starfi með Vg fyrir áramót.
2) Styrkurinn er fyrir verkefni Karlmennskunnar og ég vel með hverjum ég vil starfa með.
3) Ákvörðun styrks er tekin af fagráði (5 sérfræðingum) og stjórn sjóðsins (3 sérfræðingum) og því kemur Katrín ekki að ferlinu, nema til að afhenda á táknrænan hátt sem ráðherra jafnréttismála.

En ég þakka kveðjuna frá Hádegismóum og væri gjarnan til í samstarf. Var þetta ekki annars beiðni um það?“

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Bandarísk stjórnmál: Biden vill koma böndum á Hæstarétt Bandaríkjanna

Bandarísk stjórnmál: Biden vill koma böndum á Hæstarétt Bandaríkjanna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hildur hnyklar brýnnar í áframhaldandi ritdeilu – „Ég trúi varla að ég þurfi að rita enn eina grein­ina“

Hildur hnyklar brýnnar í áframhaldandi ritdeilu – „Ég trúi varla að ég þurfi að rita enn eina grein­ina“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur