fbpx
Miðvikudagur 24.júlí 2024
Eyjan

Arnfríður skipuð dómari við Landsrétt – Aftur

Trausti Salvar Kristjánsson
Þriðjudaginn 16. júní 2020 14:24

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arnfríður Einarsdóttir hefur verið skipuð í embætti dómara við Landsrétt frá 1. júlí 2020 samkvæmt tillögu dómsmálaráðherra. Var hún metin hæfust umsækjenda samkvæmt hæfnisnefnd.

Þetta kemur fram á vef stjórnarráðsins.

„Arnfríður var skipuð dómari við Héraðsdóm Reykjaness 1. febrúar 2006 og við Héraðsdóm Reykjavíkur 1. maí 2010 og gegndi því starfi allt þar til hún var skipuð dómari við Landsrétt frá 1. janúar 2018.

Fyrr í þessum mánuði baðst Arnfríður lausnar frá þeirri skipun og hefur dómsmálaráðherra ákveðið að leggja til við forseta Íslands að sú beiðni verði samþykkt og henni veitt lausn frá 30. júní næstkomandi.“

Arnfríður hefur ekki dæmt í Landsrétti síðan í mars í fyrra vegna niðurstöðu Mannréttindadómstóls Evrópu í Landsréttarmálinu.

Við skipun Arnfríðar losnar embætti eins dómara í Landsrétti og verður það embætti auglýst laust til umsóknar innan tíðar samkvæmt tilkynningu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Bandarísk stjórnmál: Biden vill koma böndum á Hæstarétt Bandaríkjanna

Bandarísk stjórnmál: Biden vill koma böndum á Hæstarétt Bandaríkjanna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hildur hnyklar brýnnar í áframhaldandi ritdeilu – „Ég trúi varla að ég þurfi að rita enn eina grein­ina“

Hildur hnyklar brýnnar í áframhaldandi ritdeilu – „Ég trúi varla að ég þurfi að rita enn eina grein­ina“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur