fbpx
Miðvikudagur 24.júlí 2024
Eyjan

Svona virka nýju hlutdeildarlánin – Engar afborganir á lánstíma

Trausti Salvar Kristjánsson
Fimmtudaginn 11. júní 2020 14:40

Það er ekkert grín að vera með breytilega vexti þessa dagana.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, hefur lagt fram á Alþingi frumvarp um hlutdeildarlán sem ætlað er að auðvelda tekju- og eignalitlum einstaklingum að eignast sína fyrstu íbúð. Eru lánin sögð brúa bilið á milli lána veittum af fjár­mála­fyr­ir­tækjum og lífeyrissjóðum ann­ars vegar og kaup­verðs hins veg­ar.

Hlutdeildarlánin eru að skoskri fyrirmynd og hefur sú leið reynst vel þar í landi, samkvæmt tilkynningu frá félagsmálaráðuneytinu, en úrrræðið var kynnt á fundi hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun í dag.

Engar afborganir né vextir á lánstíma

Hlutdeildarlánin verða ólík hefðbundnum fasteignalánum að því leyti að ríkið lánar tekjulágum fyrstu kaupendum ákveðið hlutfall af verði þess íbúðarhúsnæðis sem þeir hyggjast kaupa.

Hlutdeildarlánin bera hvorki vexti né afborganir á lánstímanum, þó bera þau vexti hækki tekjur lántaka á lánstímanum umfram ákveðin tekjumörk.

Lántakendurnir skulu endurgreiða hlutdeildarlánið þegar íbúðin er seld. Hámarkslánstími hlutdeildarlána er 25 ár. Að þeim tíma liðnum skal endurgreiða ríkinu lánið hafi íbúðin ekki þegar verið seld.

Dæmi:

Kaupverð fasteignar er 40 milljónir og hlutdeildarlán hljóðar upp á 20% af kaupvirðinu eða sem samsvarar 8 milljónum króna.

Tíu árum síðar er eignin seld fyrir 50 milljónir króna. Þá eru tuttugu prósentin endurgreidd, nema hlutfallið reiknast nú af nýja fasteignaverðinu og nemur endurgreiðslan því 10 milljónum kr.

Þannig nýtur ríkið sem lánveitandi einnig góðs af hækkun fasteignaverðs, ólíkt öðrum lánveitendum á húsnæðismarkaði.

Leggja að lágmarki til 5% eigið fé

Hlutdeildarlánin munu virka þannig að kaupandi leggur til að lágmarki 5% eigið fé og tekur 75% fasteignalán hjá lánastofnun sem fer á 1. veðrétt og 20% hlutdeildarlán hjá ríkinu sem fer á 2. veðrétt.

Í ákveðnum tilvikum geta hlutdeildarlán farið upp í allt að 30% af verði fasteignar ef lántakendur uppfylla skilyrði sem sett verða. Fasteignalán lánastofnunarinnar lækkar þá á móti niður í allt að 65% af kaupverði.

Meginreglan verður sú að lántakandi þarf að standast greiðslumat fyrir láni sem nemur 75% kaupverðs en heimilt verður að veita hærri hlutdeildarlán til umsækjanda ef hann er undir tilteknum tekjumörkum.

Miðað verður við 7.560.000 kr. árstekjur einstaklings og 10.560.000 kr. í árstekjur hjóna og sambúðarfólks.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Bandarísk stjórnmál: Biden vill koma böndum á Hæstarétt Bandaríkjanna

Bandarísk stjórnmál: Biden vill koma böndum á Hæstarétt Bandaríkjanna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hildur hnyklar brýnnar í áframhaldandi ritdeilu – „Ég trúi varla að ég þurfi að rita enn eina grein­ina“

Hildur hnyklar brýnnar í áframhaldandi ritdeilu – „Ég trúi varla að ég þurfi að rita enn eina grein­ina“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur