fbpx
Miðvikudagur 24.júlí 2024
Eyjan

Úthúðar vinnustað sínum og boðar nýjar lausnir -„Á Alþingi er allt vitlaust“

Trausti Salvar Kristjánsson
Fimmtudaginn 11. júní 2020 09:41

Björn Leví Gunnarsson. Mynd: Eyþór Árnason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Á Alþingi er allt vitlaust, á fleiri vegu en einn, og Ísland er verra vegna þess,“ segir Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata í grein í Morgunblaðinu í dag.

Hann finnur þinginu flest til foráttu og segir að hægt sé að gera mun betur þegar kemur að skilvirkni, vandvirkni og festu varðandi eftirlitshlutverk sitt með framkvæmdavaldinu:

„Ég er að tala um hlutverk þingsins og hversu vitlaust er farið með það. Hlutverk þingsins er þrískipt. Þingið setur lög, ákveður fjárveitingar og hefur eftirlit með framkvæmdavaldinu. Það sem þingið gerir aðallega er að setja lög, og gerir það illa. Það er ekki hægt að segja að þingið sé skilvirkt vegna þess að sömu málin eru óafgreidd þing eftir þing. Það er ekki hægt að segja að þingið sé vandvirkt af því að reglulega er málum troðið í gegn með tilheyrandi fjárhagslegum og réttindalegum skaða. Það er ekki hægt að segja að þingið sýni festu því í fyrradag afgreiddum við enn ein lögin um einhvern sjóð þar sem breytingatillögu um fagráð, eins og var gert í öðrum sjóði fyrir stuttu, var hafnað. Tveir sjóðir, mismunandi fyrirkomulag.“

Svifaseint og úrelt

Björn Leví segir að  lagasetningarhlutverkið ætti í raun að vera veigaminnsta hlutverk þingsins:

„Að minnsta kosti það hlutverk sem minnstur tími ætti að fara í. Það væri tiltölulega auðvelt að ná því ef þingið væri skilvirkara í afgreiðslu þingmála. Þannig væri hægt að vera með vel uppfært lagasafn sem væri aðgengilegra og skiljanlegra. Kerfið er hins vegar allt of svifaseint og þegar þingið tekur við nýjum áskorunum eru þær jafnvel orðnar úreltar þegar þingið klárar loksins eitthvað.“

Ráðherrar með frítt spil

Hann segir að mestur tíminn ætti að fara í eftirlit með framkvæmdavaldinu:

„Þegar maður áttar sig á því skilur maður líka af hverju þingið er fast í óskilvirkum lagasetningargír. Því að á meðan þingið er fast í því fari eru ráðherrar með „losnar frítt úr fangelsi“-spil á hendi. Ef svo ólíklega vill til að eitthvað óhreint komi upp úr pokanum, kannski út af þrotlausri vinnu rannsóknarblaðamanna eða vegna þess að fólk leitar réttar síns fyrir mannréttindadómstól, er ráðherrann alltaf á bak við afsökunarskjaldborg þingflokka í meirihlutastjórn sem er límd saman með samtryggingunni. Þetta er alvarlegt mál því þegar ráðherra hlutast til um skipun dómara, ráðningu í fræðasamfélaginu eða skipar flokksgæðing umfram hæfnismat þá verður Ísland verra en það gæti verið. Þetta þýðir verri niðurstöður þegar borgarar leita réttar síns, lélegri vísindi og hlutdræga stjórnsýslu þar sem málefnaleg rök skipta ekki máli heldur hvaða flokksskírteini fólk ber. Afleiðingin af því eru glötuð tækifæri, ranglæti, leyndarhyggja til þess að fela ófaglegheitin og verra Ísland,“

segir Björn Leví og kynnir síðan allsherjarlausn sína undir lok greinarinnar:

„Það sem við þurfum er minnihlutastjórn svo framkvæmdavaldið ráði ekki öllu og ný og betri stjórnarskrá með frumkvæðisrétti og málskotsrétti.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Bandarísk stjórnmál: Biden vill koma böndum á Hæstarétt Bandaríkjanna

Bandarísk stjórnmál: Biden vill koma böndum á Hæstarétt Bandaríkjanna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hildur hnyklar brýnnar í áframhaldandi ritdeilu – „Ég trúi varla að ég þurfi að rita enn eina grein­ina“

Hildur hnyklar brýnnar í áframhaldandi ritdeilu – „Ég trúi varla að ég þurfi að rita enn eina grein­ina“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur