Þetta segir Geoffrey Berman saksóknari í yfirlýsingu sem birt var á mánudag. Yfirlýsingin var birt eftir að lögfræðingar prinsins sögðu frá því fyrr sama dag að prinsinn hafi boðið fram aðstoð sína, a.m.k. þrisvar sinnum á þessu ári. Þessu neitar Geoffrey Berman, sem er saksóknari í suðurhluta New York, og vinnur að rannsókn á því hvort einhverjir hafi aðrir hafi tekið þátt í þeim glæpum sem hann er sakaður um.
Í yfirlýsingunni segir að Andrew prins hafi enn einu sinni reynt, með lygum, að láta líta út fyrir að hann sé viljugur til þess að vinna með yfirvöldum að rannsókninni á glæpum sem framdir voru af Epstein og samverkamönnum hans.
Hann bætir við að næstelsti sonur Elísabetar drottningar hafi hvað eftir annað neitað að koma til yfirheyrslu. Samkvæmt Geoffry Berman hafa yfirvöld mánuðum saman reynt að fá prinsinn til að vinna með sér.
Að lokum segir í yfirlýsingunni að ef Andrew prins sé alvara með því að vilja vinna með yfirvöldum, standi dyr þeirra opnar.
Mál Jeffery Epstein fjallar um mansal og kynferðislega misnotkun á börnum. Epstein viðurkenndi árið 2008 að hafa greitt stúlku undir lögaldri fyrir kynlíf. Hann var dæmdur í 13 mánaða fangelsi, í umdeildum réttarhöldum, en margir voru á þeirri skoðun að hann hafi fengið allt of mildan dóm. Epstein fannst látinn í fangaklefa sínum í ágúst síðastliðinn. Það gerðist á meðan hann beið dóms í nýju, viðamiklu máli, um mansal og kynferðisbrot á börnum. Hann hefði getað hlotið allt að 45 ára fangelsisdóm.
Kona ein heldur því fram að þegar hún var 17 ára hafi Epstein neytt hana til að hafa kynmök við Andrew prins. Prinsinn hefur sjálfur neitað því að þekkja konuna. Hann dró sig í hlé frá opinberum störfum í nóvember síðastliðinn, vegna málsins.