fbpx
Miðvikudagur 24.júlí 2024
Eyjan

„Svo heimskuleg að Hollywood léti sér ekki detta svona þvæla í hug“

Jón Þór Stefánsson
Þriðjudaginn 9. júní 2020 12:08

Benedikt Jóhannesson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Benedikt Jóhannesson, stofnandi Viðreisnar og fyrrverandi Fjármála- og efnahagsráðherra, skrifaði pistil sem birtist í Morgunblaðinu í dag þar sem hann ræddi forsetatíð Donalds Trump og Þýskaland nasismans.

Benedikt segir að undanfarnir dagar hjá Trump hafi verið svo fáránlegir að ekki einu sinni Hollywood myndi detta þeir í hug. Hann segir að margir hafi óttast forsetatíð Trump, en margir héldu að Bandaríkin hefðu nægilega sterka öryggisventla til að halda honum á mottunni.

„Forseti Bandaríkjanna lætur hermenn ryðja burt friðsömum mótmælendum til þess að hægt sé að taka mynd af honum með biblíu í hendi. Svipmyndin er svo heimskuleg að Hollywood léti sér ekki detta svona þvæla í hug.

Þegar Trump var kosinn óttuðust margir að hann gæti gert skelfilega hluti, en aðrir voru vissir um að Bandaríkin, brjóstvörn lýðræðisins, hefðu næga öryggisventla. Reynslan sýnir þvert á móti að Trump gengur sífellt lengra, hótar andstæðingum, rekur þá sem eiga að gæta þess að reglum sé fylgt og hefur þær að engu. Hann dregur Bandaríkin út úr alþjóðasamvinnu, reisir múra, berst markvisst gegn viðskiptum þjóða á milli og býr til ímyndaða óvini eins og djúpríkið .“

Þá vitnar Benedikt í leikritið Brennuvargarnir og segir að það sé hægt að nota sem dæmisögu fyrir uppgang nasista og líklega einnig Trump.

„Í leikritinu Brennuvargarnir eftir Max Frisch segir frá Biedermann, virðulegum borgara, sem leigir tveimur náungum herbergi í húsi sínu. Í borginni er íkveikjufaraldur og áhorfendur sjá fljótlega að leigjendurnir eru ekki allir þar sem þeir eru séðir. Biedermann trúir samt engu illu upp á þessa leiguliða, jafnvel þegar þeir segjast vera brennuvargar. Þó að bensíntunnurnar blasi við á loftinu réttir hann þeim eldspýtustokkinn. Í lokin er húsið í ljósum logum.

Dæmisagan er skýr. Ógnaröflin færa sig upp á skaftið meðan enginn sér við þeim. New York Times líkti nasistum Hitlers við skátaflokk árið 1928. Þá fengu þeir 2% atkvæða í kosningum. Fimm árum seinna varð Hitler kanslari eftir kosningasigur nasista. Hann herti hratt tökin og skapaði samfélag ótta og einangrunar. Í nóvember 1933 kusu 94% þjóðarinnar nasista. Margir kjósendur nýttu sér þau „þægindi“ að greiða atkvæði án þess að fara inn í kjörklefann. Sú saga komst á kreik að atkvæðaseðlarnir væru leynilega merktir og ráðamenn ýttu undir slíkar vangaveltur.“

Benedikt heldur því fram að Þýskaland hafi ekki verið óupplýst land og ekki heldur Bandaríkin. Þá endar hann á því að vitna í ljóð eftir Þórarinn Eldjárn.

„Alræðisstjórnir fortíðar áttu leynilegar skrár um alla. Koma þurfti fyrir hlerunarbúnaði og skrifa upp skýrslur með ærinni vinnu og fyrirhöfn. Núna göngum við sjálfviljug með búnað sem skráir allar hreyfingar okkar, veit hvað við lesum, hlustum eða horfum á og getur heyrt og tekið upp allt sem sagt er. Það sem meira er, ofurtölvur með gervigreind geta unnið úr upplýsingunum á augabragði. Svona búnað hefðu Stalín og Hitler þegið með þökkum. Þeir sem slökktu á símanum hefðu farið fyrst í fangabúðirnar.

Þýskaland var ekki vanþróað land óupplýst fólks og illmenna upp úr 1930 fremur en Bandaríkin árið 2016. Heiðvirt fólk brást bara ekki við hættunni meðan það var hægt. Á Íslandi hæðist ákveðinn hópur manna að „góða fólkinu“, jafnvel menn sem áður nutu álits.

Þórarinn Eldjárn orti:

Veðrið er fínt, það er fallegt á Bakka

og fasisminn ríður í hlað.

Velgreiddur maður í vönduðum jakka,

í vasanum morgunblað.

Bakkabræður taka gestinum vel. Í lok kvæðisins vill hann gista. Hverju svörum við þá?“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Bandarísk stjórnmál: Biden vill koma böndum á Hæstarétt Bandaríkjanna

Bandarísk stjórnmál: Biden vill koma böndum á Hæstarétt Bandaríkjanna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hildur hnyklar brýnnar í áframhaldandi ritdeilu – „Ég trúi varla að ég þurfi að rita enn eina grein­ina“

Hildur hnyklar brýnnar í áframhaldandi ritdeilu – „Ég trúi varla að ég þurfi að rita enn eina grein­ina“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur