,,Við vorum mættir til veiða rétt um hádegi í vatnið, ég og Kjartan sonur minn,“ sagði Kári Jónsson í samtali við Veiðipressuna en hann var í Heiðarvatni í Mýrdal fyrir skömmu.
,,Við fengum strax tvær bleikur á svartan Dýrbít enda er sú fluga nánast með tökutryggingu. Það rigndi nokkuð og blés. Eftir því sem leið á daginn bætti í rigninguna sem varð ansi mikil og samfelld. Við létum það ekki stoppa gleðina enda farnir að tina upp bleikjur og stöku urriða,“ sagði Kári.
Kári sagði að þegarr hlé varð á tökum var gott að grípa í kaffibrúsann og kíkja svo á aðra veiðistaði. Kjartan setti bleikan Dýrbít undir og fékk á hann svo ég skipti líka. Með því að sökkva færinu til botns veiddust stærri bleikjur.
,,Þannig veiddum við fram yfir kvöldmat og hættum þegar hlé var á rigningunni til að komast úr gallanum. Í kassanum lágu sextán bleikjur, flestar 1,5 til 3 pund, allt góður matfiskur og fjórir urriðar fengu líf aftur eftir sprækari tökur. Allir veiðstaðir sem við prófunum gaf fisk svo við skemmtum okkur vel að vanda. Heiðarvatn klikkaði ekki frekar en fyrri daginn,“ sagði Kári ennfremur og á myndinni er aflinn úr vatninu þennan daginn.