Illugi Jökulsson rithöfundur lenti í uppákomu í rútu fyrir skemmstu. Illugi var eini farþeginn og sat nálægt bílstjóranum sem er Pólverji. Áður en rútan lagði af stað átti bílstjórinn í tilfinningaþrungnu símtali við konu. „Hann hrópaði, skammaði, emjaði og var loks farinn að gráta,“ segir Illugi í færslu á Facebook. Eftir símtalið grunaði bílstjórann að Illugi hefði tekið upp það sem fram fór og fékk að skoða símann hans. Þegar hann sá að svo var ekki róaðist hann, bað Illuga afsökunar og sagði svo: „Woman is crazy“.