Á sjónvarpsstöðinni TLC má horfa á ansi furðulega þætti eins og Toddlers and Tiaras, Dr. Pimple Popper og Sex sent me to the ER.
sMothered hófu göngu sína á sjónvarpsstöðinni í fyrra. Þeir fjalla um mæðgur sem eiga það sameiginlegt að vera ótrúlega nánar.
Önnur þáttaröð af sMothered fer í loftið þann 24. maí næstkomandi. Í fyrsta þættinum fáum við að kynnast mæðgunum Mary, 55 ára, og Brittani, 19 ára, frá Flórída.
Mary og Brittani fara saman í sturtu á hverjum degi og hafa gert það síðan Brittani var fimm ára gömul. Þær segja að þetta sé „besta leiðin til að byrja daginn.“
Í stiklu fyrir þættina má sjá Mary þrífa hár Brittani, sem segir að það fylgi því ákveðin ró og vellíðan þegar móðir hennar þrífur hana.
„Ég elska hana og finnst ekkert að þessu,“ segir Mary.
Mæðgurnar búa saman. Að sögn Brittani mun móðir hennar „örugglega deyja úr aðskilnaðarkvíða“ ef hún flytur að heiman.
Þetta byrjaði allt þegar Brittani var fimm ára og var vön að fá kvíðaköst í sturtu. Mary byrjaði að fara með henni í sturtu til að hjálpa dóttur sinni að komast yfir kvíðann en hætti því svo aldrei aldrei.
Mæðgurnar deila einnig rúmi á næturnar. Þó svo að Mary eigi kærasta, Frank, sem telur að það sé kominn tími fyrir Brittani að flytja út.