Vegna COVID tengdra forfalla veiðimanna búsettra erlendis bjóðum við í júní uppá sjálfsmennsku í Laxá í Laxárdal. Þetta er einstakt tækifæri fyrir veiðimenn til að fara á eitt besta urriðasvæði í heimi í sjálfsmennsku. Þeir sem kjósa að gista í húsinu greiða aðeins kr. 5.000 á dag pr. mann fyrir uppábúið rúm við komu. Veiðimenn sjá um sig sjálfir í mat og drykk og eru beðnir um að ganga vel um húsið.
Veiðimenn kjósa ekki að nýta húsið er velkomið að kaupa veiðileyfið eitt og sér. Þeir veiðimenn sem ekki ætla að gista verða að tilkynna það fyrirfram með minnst 10 daga fyrirvara fyrir komu með því að senda tölvupóst á svfr@svfr.is þess efnis.
Einnig bjóðum við veiðimönnum að kaupa staka daga, sendið okkur fyrirspurn á svfr@svfr.is. Það er því auðvelt fyrir t.d. fyrir veiðimenn sem fara í Mývatnssveit að lengja veiðitúra sína og prófa Laxárdalinn fyrst menn eru komnir norður á annað borð. Þá er stakur daguri tilvalinn fyrir nærsveitarmenn sem hafa ekki þörf á fæði.