,,Við sáum tvo laxa stökkva í veiðistaðnum Huldu sem er í neðri part Urriðafoss í dag,“ sagði Stefán Sigurðsson um Þjórsá þar sem laxinn er mættur. En veiðin hefst í ánni 1. júní og eru menn orðnir spenntir að opna .
,,Við munum opna ána, ég og Harpa allavega, veit ekki með fleiri,“ sagði Stefán ennfremur.
Veiðimenn eru farnir að kíkja víða en hafa lítið séð ennþá eins og í Laxá í Kjós nema flissandi vatn og sjóbirtingur sem geta verið vænir. Eitthvað hefur verið skoðað í Elliðaánum en hann er víst ekki mættur ennþá, en stutt í hann.
Lax gæti verið kominn í Norðurá og jafnvel Þverá. Laxinn rennir sér oft upp Hvítána í apríllok eða byrjun maí. Margir eru að spá fínu veiðisumri, mikið er af eins árs laxi samkvæmt spám og það klikkar varla.
Mynd. Fjör við Þjórsá fyrir ári síðan, Matthías Stefánsson, Stefán Sigurðsson og Harpa Hlín Þórðardóttir með flottan lax.