fbpx
Miðvikudagur 24.júlí 2024
Eyjan

Reglur skortir um þvingaða meðferð – „Grafalvarlegt mál“

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 13. maí 2020 13:37

Svandís Svavarsdóttir.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Knýjandi þörf er á reglum sem kveða skýrt á um hvers konar þvinganir eru heimilar í meðferð sjúklinga ef víkja þarf frá meginreglunni um sjálfsákvörðunarrétt sjúklings til að þiggja eða hafna meðferð. Þetta er meginniðurstaða starfshóps heilbrigðisráðherra sem fjallað hefur um efnið oggreint er frá á vef stjórnarráðsins. Drög að reglugerð byggð á niðurstöðu hópsins verða birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda.

„Starfshópurinn hefur skilað mjög vandaðri vinnu og tillögum sem ég hef trú á að muni setja þessi mál í skýrari farveg eins og kallað hefur verið eftir. Að beita einhvern nauðung og ganga þannig gegn vilja hans og sjálfræði er grafalvarlegt mál. Slíkt ber að forðast í lengstu lög og sé það óhjákvæmilegt þarf allt varðandi ferlið að vera skýrt, gagnsætt og rekjanlegt,“

segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra, sem tók formlega við niðurstöðum hópsins á skilafundi í ráðuneytinu.

Ávallt hætta á misnotkun

Meginniðurstaða starfshópsins er sú að allt vald yfir öðrum einstaklingum felur í sér hættu á misnotkun. Í skýrslu starfshópsins er fjallað um ábendingar undirnefndar Sameinuðu þjóðanna um varnir gegn pyndingum sem bent hefur á þessu sjónarmið og talað fyrir nauðsyn þess að þvinguð meðferð fari einungis fram innan skilgreind ramma þar sem kveðið er á um ýmis tilgreind viðmið og verkferla, eftirlit, endurskoðun og áfrýjunarmöguleika. Þvinguð meðferð megi heldur aldrei vera ætluð til hægðarauka fyrir starfsfólk, ættingja eða aðra.

Í 28. gr. lögræðislaga nr. 71/1997 er fjallað um meðferð nauðungarvistaðs manns á sjúkrahúsi. Þar er einnig kveðið á um heimild heilbrigðisráðherra til að setja nánari reglur um þvingaða lyfjagjöf og aðra þvingaða meðferð.

Slíkar reglur hafa ekki verið settar til þessa og hefur það sætt gagnrýni, ekki síst af hálfu fagfólks. Verkefni starfshóps heilbrigðisráðherra var að fjalla um þörf fyrir slíkar reglur og hver helstu efnisákvæði slíkra leiðbeininga ættu að vera.

Formaður starfshópsins var Helga Baldvins Bjargardóttir, lögmaður og þroskaþjálfi en aðrir nefndarmenn voru Halldóra Jónsdóttir, geðlæknir á Landspítala, Sigrún Ingvarsdóttir, félagsráðgjafi hjá Reykjavíkurborg og Sveinn Rúnar Hauksson læknir, tilnefndur af Geðhjálp.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Bandarísk stjórnmál: Biden vill koma böndum á Hæstarétt Bandaríkjanna

Bandarísk stjórnmál: Biden vill koma böndum á Hæstarétt Bandaríkjanna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hildur hnyklar brýnnar í áframhaldandi ritdeilu – „Ég trúi varla að ég þurfi að rita enn eina grein­ina“

Hildur hnyklar brýnnar í áframhaldandi ritdeilu – „Ég trúi varla að ég þurfi að rita enn eina grein­ina“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur