fbpx
Miðvikudagur 24.júlí 2024
Eyjan

Milljarðahöll Alþingis rís í miðri kreppu – Steingrímur spenntur fyrir hagstæðum tilboðum

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 13. maí 2020 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ekkert endurmat hefur farið fram vegna framkvæmda á nýbyggingu Alþingis vegna kórónukreppunnar og ekki þykir ástæða til að gera slíkt endurmat í nafni sparnaðar. Verklok eru áætluð árið 2023 og áætlaður kostnaður er 4.4 milljarða króna.

Þetta kemur fram í svari Steingríms J. Sigfússonar, forseta Alþingis, við fyrirspurn Eyjunnar:

„Svarið er nei, enda hafa viðbrögð við efnahagssamdrætti vegna COVID-19 meðal annars verið að auka opinbera fjárfestingu. Undirbúningur er í eðlilegum farvegi og þeir tveir verkþættir sem búið er að bjóða út og semja um eru í fullum gangi (jarðvegsframkvæmdir í grunni og sögun steinklæðningar). Stefnt er að útboði á meginframkvæmdinni, uppsteypu hússins, upp úr miðju ári,“

sagði Steingrímur.

Tilhlökkun vegna tilboða

Steingrímur bætti við að ákveðin tilhlökkun ríkti vegna útboðsins, þar sem líklegt .ætti að þau yrðu Alþingi afar hagstæð sökum ástandsins í efnahagslífinu:

„Bíða menn spenntir eftir því að sjá hversu hagstæð tilboð berast, nú þegar dregið hefur nokkuð úr þenslu í byggingariðnaði.“

Eyjan spurði Steingrím þá hvort ekki væru líkur á því að ekki þyrfti að fullnýta fjárheimildir Alþingis til verksins, þar sem von væri á hagstæðum tilboðum:

„Það er nú of snemmt að segja til um það. Frekar má segja að aukin bjartsýni sé um að við fáum tilboð sem verða innan ramma kostnaðaráætlunar. Slíkt var ekki sjálfgefið fyrir ári síðan eða svo samanber hús íslenskra fræða til dæmis,“

segir Steingrímur, en téð hús var gjarnan kallað hola íslenskra fræða, þar sem framkvæmdir töfðust ítrekað og lengst af blasti við stór hola í jörð.

Teikning Eflu af húsinu

Fór 800 milljónir fram úr áætlunum

Skóflustungan að viðbyggingu Alþingis var tekin í febrúar, en húsið verður alls 6000 fermetrar að stærð. Kostnaðaráætlunin var upphaflega 3,6 milljarðar, en jókst í 4,4 milljarða með breyttum forsendum.

Samkvæmt svari Alþingis við fyrirspurn Eyjunnar í febrúar um breytingar á áætluðum framkvæmdarkostnaði, skýrist aukningin meðal annars af stækkun hússins miðað við upphaflegar teikningar:

„Efnt var til hönnunarsamkeppni um 5.750 m² skrifstofubyggingu Alþingis árið 2016. Að samkeppni lokinni, þegar kom að gerð ráðgjafasamnings við verðlaunahafa í júlí 2017, kom fram að samþykkt væri um 691 m² viðbót og byggingin yrði samtals 6.441 m² (5.750 + 691m²) sem hafði áhrif á áætlaðan heildarkostnað verkefnisins,“

segir í svari Alþingis.

Plönin stóðust ekki – Forsendur breyttust

Í svarinu frá Alþingi segir síðan að í framhaldi af gerð samningsins og út árið 2018 hafi verið unnið að því að fara yfir kostnaðaráætlunina og stærð hússins til þess að verkefnið myndi rúmast innan heildarkostnaðaráætlunar en framkvæmdakostnaður var þá áætlaður um 3.6 milljarðar.

Það hafi hinsvegar ekki tekist, þar sem kröfur til hússins hefðu breyst í millitíðinni:

„Einnig voru ýmis einingaverð rýnd, óvissuþættir skoðaðir nánar s.s. staðsetning verkefnis m.t.t. framkvæmdakostnaðar og klæðningar hússins svo eitthvað sé nefnt. Ljóst var á þessu stigi verkefnisins að kröfur til þess hefðu aukist, m.a. hvað varðar öryggismál, gæðakröfur og samtengingar við aðrar byggingar Alþingis,“

segir í svarinu.

Húsið minnkar

Í svarinu er einnig tekið fram að nú hafi verið áætlaðar verðbætur samkvæmt verðlagsþróun, á stigi áætlunargerðarinnar og hinnar verklegu framkvæmdar, en það hafi ekki verið gert samkvæmt gildandi verklagi árið 2016.

Þá kemur fram að húsið hafi verið minnkað úr áætluðum 6400 fermetrum:

„Í apríl 2019 var ráðgjafasamningurinn uppfærður m.t.t. til framangreindra forsendubreytinga og var þá miðað við að stærð hússins sé 6.188 m² og framkvæmdakostnaður hennar rúmist innan heildarkostnaðaráætlunar verkefnis sem er skilgreind 4.400 m.kr. í fjármálaáætlun ríkisins. Samstarfsnefnd um opinberar framkvæmdir (SOF) fékk kostnaðaráætlun til samþykktar áður bæði áður en steinklæðningin á nýbygginguna og jarðvinna var boðin út.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Bandarísk stjórnmál: Biden vill koma böndum á Hæstarétt Bandaríkjanna

Bandarísk stjórnmál: Biden vill koma böndum á Hæstarétt Bandaríkjanna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hildur hnyklar brýnnar í áframhaldandi ritdeilu – „Ég trúi varla að ég þurfi að rita enn eina grein­ina“

Hildur hnyklar brýnnar í áframhaldandi ritdeilu – „Ég trúi varla að ég þurfi að rita enn eina grein­ina“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur