fbpx
Miðvikudagur 24.júlí 2024
Eyjan

Play nýtir hlutabótaleið fyrir 24 starfsmenn af 36 – Stjórnendur tóku á sig launaskerðingu

Eyjan
Sunnudaginn 10. maí 2020 17:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Flugfélagið Play nýtir nú hlutabótaleiðina fyrir 24 starfsmenn af þeim 36 sem hjá fyrirtækinu starfa. Stjórnendur fyrirtækisins hafa einnig tekið á sig launaskerðingu. Þetta kemur fram í svari Arnars Más Magnússonar, forstjóra Play, við fyrirspurn Eyjunnar.

Stjórnendur lækkaðir í launum

„Það liggur auðvitað fyrir að það var lán í miklu óláni að PLAY var ekki komið af stað með flug fyrir COVID-19 faraldurinn en það þýðir jafnframt að sala hefur tafist og því eru tekjur félagsins engar eins og er. Viðbrögð okkar við þessu hafa verið þau að bíða átekta framan af en 1. mars tók hinsvegar framkvæmdastjórn á sig launaskerðingu, og stjórnendur frá 1. apríl og eru núna með 700 þúsund krónur í heildarlaun.“
Öll á sama báti 
Þegar hlutabótaleiðin var kynnt hóf félagið svo samtal við Vinnumálastofnun um nýtingu úrræðisins og 1. apríl fóru 24 starfsmenn af þeim 36 sem vinna fyrir félagið niður í 50 prósent starfshlutfall, sem var svo lækkað niður í 25 prósent núna 1. maí.

„Við drógum það að nýta hlutabótaleiðina eins og kostur er. Henni er hinsvegar ætlað að viðhalda ráðningarsambandi við starfsfólk og þar sem flugfélagið er tekjulaust, en viðbúið því að hefja flug, þá vildum við viðhalda ráðningarsambandinu við fólkið okkar. Öðrum kosti hefði þurft að koma til uppsagna eins og víða annarsstaðar. Með launalækkun stjórnenda þá erum við ennfremur öll á sama báti tekjulega séð.“

Aðeins 12 lykilstjórnendur félagsins eru nú í fullu starfshlutfalli en á skertum launum.

Þreyja þorrann

„Víða um heim hafa stjórnendur flugfélaga brugðist við með verulegum launalækkun, við gerum það líka enda erum við lággjalda flugfélag. Og þar sem við ætlum að vera hluti af viðreisn og viðspyrnu íslenskrar ferðaþjónustu þá leggjumst við öll á eitt til að eiga sterka innkomu á flugmarkaðinn um leið og það er hægt. Á meðan þreyjum við þorrann.
Við getum lítið spáð um framtíðina annað en það að segja að við erum mjög spennt fyrir því að verða hagkvæmur og þægilegur valkostur fyrir íslenska neytendur og erlenda ferðamenn.“

Nýlega var greint frá á vef Túrista.is að flugfélagið Play bíði átekta með að taka fyrstu flugvélina í notkun og væru komnir með nægt fjármagn til að hefja flug og ef aðstæður í samfélaginu væru aðrar en nú væru þeir þegar komnir á loftið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Bandarísk stjórnmál: Biden vill koma böndum á Hæstarétt Bandaríkjanna

Bandarísk stjórnmál: Biden vill koma böndum á Hæstarétt Bandaríkjanna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hildur hnyklar brýnnar í áframhaldandi ritdeilu – „Ég trúi varla að ég þurfi að rita enn eina grein­ina“

Hildur hnyklar brýnnar í áframhaldandi ritdeilu – „Ég trúi varla að ég þurfi að rita enn eina grein­ina“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur