fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Pressan

Hvar er Kim Jong-un?

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 24. apríl 2020 05:58

Hann er ekki eins glaður þessa dagana og á þessari mynd.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hvar er Kim Jong-un einræðisherra í Norður-Kóreu? Þessari spurningu hefur margoft verið velt upp í vikunni því leiðtoginn hefur ekki sést opinberlega í tvær vikur. Hann sást meðal annars ekki á mikilfenglegri hersýningu þann 15. apríl í tilefni af fæðingardegi afa hans, Kim Il-sung, sem stofnaði Norður-Kóreu. Fram hefur komið í erlendum fjölmiðlum að leiðtoginn ungi hafi gengist undir hjartaaðgerð og sé nú á milli heims og helju í kjölfar hennar.

Það var CNN sem skýrði frá þessu og suður-kóreski miðillinn Daily NK, sem er rekinn af landflótta Norður-Kóreumönnum, skýrði frá því í kjölfarið að leiðtoginn hefði gengist undir aðgerð vegna margvíslegra hjarta- og æðasjúkdóma. Aðgerðin er sögð hafa verið gerð á einkasjúkrahúsi Kim-fjölskyldunnar í Hyangsang. Hann sást síðast opinberlega 11. apríl á fundi hjá kommúnistaflokknum. Aðgerðin er sögð hafa verið gerð daginn eftir. Þremur dögum síðar skaut her landsins nokkrum eldflaugum út á Japanshaf. Leiðtoginn sýnir sig yfirleitt við eldflaugaskot sem þessi en lét sig alveg vanta í þetta sinn.

Fylgjast náið með

Richard O‘Brien, þjóðaröryggisráðgjafi Bandaríkjanna, segir að Bandaríkin fylgist náið með stöðu mála í Norður-Kóreu. Bruce Klingner, sérfræðingur í málefnum einræðisríkisins, segir að margar sögur gangi um heilsufar leiðtogans. Það hafi áður gerst að slíkar sögur hafa farið á kreik og því verði að bíða og sjá hvað er satt og rétt.

Vitað er að heilsufar leiðtogans hefur verið slæmt. Hann er í mikilli yfirþyngd, reykir, mæðist mikið og er stressaður. Vitað er að hann nýtur hins ljúfa lífs. Hann fær reglulega matarsendingar frá Kína, til dæmis franska gæsalifur, ferskan humar og sérvalin vín. Á sama tíma fær stór hluti þjóðar hans ekki næga næringu.

Heilsufar hans er flokkað sem ríkisleyndarmál í Norður-Kóreu og því er erfitt fyrir erlendar leyniþjónustur að afla sér upplýsinga um heilsufar hans.

Staðan er alvarlega að mati Bandaríkjanna sem sendu nokkrar herflugvélar inn yfir Norður-Kóreu í gær til njósna og fóru ekki leynt með það. Meðal annars var flogið yfir höfuðborgina Pyongyang. Venjulega eru flug sem þessi mjög leynileg en nú virðist hafa verið ætlunin að láta vélarnar sjást. Markmiðið gæti verið að reyna að þvinga fram viðbrögð frá Norður-Kóreu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Það er farið að hægja á snúningi innri kjarna jarðarinnar – Það gæti breytt daglengdinni

Það er farið að hægja á snúningi innri kjarna jarðarinnar – Það gæti breytt daglengdinni
Pressan
Fyrir 3 dögum

Er sársaukaþröskuldur kvenna hærri en karla?

Er sársaukaþröskuldur kvenna hærri en karla?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Skammbyssur sem Napóleon ætlaði að skjóta sig með seldust fyrir 255 milljónir

Skammbyssur sem Napóleon ætlaði að skjóta sig með seldust fyrir 255 milljónir
Pressan
Fyrir 4 dögum

Var á dauðaganginum í 45 ár – Vonast nú til að hreinsa nafn sitt

Var á dauðaganginum í 45 ár – Vonast nú til að hreinsa nafn sitt
Pressan
Fyrir 5 dögum

Hyggjast verðlauna aðflutta með milljónum

Hyggjast verðlauna aðflutta með milljónum
Pressan
Fyrir 5 dögum

Ítalskur bær neyðist til að vísa ferðamönnum á brott vegna vatnsskorts

Ítalskur bær neyðist til að vísa ferðamönnum á brott vegna vatnsskorts
Pressan
Fyrir 5 dögum

Banki þvingaði fólk til að kaupa óþarfa tryggingar, stofnaði yfirdátt í þeirra óþökk, færðu til peninga og sendu þeim óumbeðin greiðslukort

Banki þvingaði fólk til að kaupa óþarfa tryggingar, stofnaði yfirdátt í þeirra óþökk, færðu til peninga og sendu þeim óumbeðin greiðslukort
Pressan
Fyrir 6 dögum

Prestur barði eiginkonu sína fyrir að vera heppin

Prestur barði eiginkonu sína fyrir að vera heppin