Eins og allar góðar veiðiferðir þá hófst undirbúningurinn fyrir þessa ferð í veiðibúð daginn fyrir veiðidag (svæði 1 í Eyjafjarðará) í veiðibúðinni Veiðiríkið. Rafael Hrafn Kristjánsson 8 ára, var búin að safna sér pening og ákvað að kaupa sína eigin flugustöng. Þegar búið var að ganga frá kaupunum réttir Valur annar eigenda Veiðiríkisins honum tvær flugur og segir að hann megi eiga þær. Rafael var að sjálfsögðu himinlifandi með þetta allt saman.
Svo rann dagurinn upp sem átti að reyna stöngina og það var suðvestan rok á leiðinni inn Eyjafjörðinn. Stefnan var tekin á Stokkahlaðir sem var þægilegur staður að kasta á. Að sjálfsögðu var önnur flugan, sem hann fékk gefna í Veiðiríkinu, sett undir vindinn. Það ægði aðeins um þrjú leytið og þá byrjaði Rafael að kasta og í þriðja kasti setur hann í 51 cm sjóbirting sem hann landar, mælir og sleppir svo sjálfur.
,,Þetta var gaman,“ sagði Rafael Hrafn Kristjánsson um fyrsta flugulaxinn sinn sem hann sleppti aftur og nýju flugustöngin hans sem gaf flottan fisk.
Mynd. Rafael Hrafn Kristjánsson með fyrsta flugufiskinn. Mynd Kristján.