Stangaveiðifélag Keflavíkur hefur ákveðið að vegna kulda og ófærðar um Fossálana fyrir austan Kirkjubæjarklaustur verður frestun á að veiðimenn fari austur að veiða þar og ný staða tekin eftir helgina næstu.
Aðeins hafi veiðst fiskur í ánni áður en hún var lokuð tímabundið. Þetta á líka um Geirlandsá sem ekki hefur verið hægt að opna ennþá vegna ísalaga og kulda.
Það sama má segja um Vatnamótin en þar reyndu veiðimenn en urðu að frá að hverfa vegna sömu vandamála. Undirritaður mann ekki þessa stöðu áður í veiðinni en lítil hlýindi í kortunum þessa dagana.
Veiðimenn hafa líka lítið getað veitt í Leirvogsá ennþá mest fengið sér bíltúr og reynt að kasta en það hefur gegnið frekar illa.
Það er eitthvað um að veiðimenn ætli að bíða með veiði um pásakana. Veðurfarið og veiran setja strik í þetta allt saman þessa dagana en það kemur betri tíð innan tíðar og veirufjandinn hverfur.
Mynd: Það var leiðinlegt veður þegar Litlaá í Kelduhverfi opnaði. Samt veiddust yfir 100 fiskar sem er auðvitað bara kraftaverk.