Rapparinn Vigdís Howser Harðardóttir, sem gengur undir listanafninu Fever Dream, var að gefa út nýtt tónlistarmyndband. Við ræddum við Vigdísi í byrjun mars um myndbandið, sem var tekið upp á strippstað í Berlín. Það komu ótal margir að myndbandinu, þar á meðal stripparar af staðnum sem Vigdís kallaði femínista á öðru stigi en femínistar á Íslandi.
„Ég held að þetta myndband eigi alveg eftir að fara langt. Það er geðveikt flott og geðveikt heitar gellur í því. Þetta er ekki bara hugsað sem eitthvað týpískt rapparamyndband fyrir gagnkynhneigða karlmenn að njóta. Það er dragdrottning í myndbandinu, ég er með hinsegin lið og ógeðslega mikið af fólki sem er að vinna kynlífsvinnu í teyminu,“ sagði Vigdís og tók það einnig fram að myndbandið ætti að vera valdeflandi.
Nú er myndbandið komið á YouTube. Við heyrðum aðeins í Vigdísi um myndbandið og tilvonandi plötu.
Fordómar gagnvart kynlífsvinnu
„Það er alltaf talað um hvað kynlíf selur vel og er notað til að selja allt mögulegt. En svo er fólk með fordóma fyrir kynlífsvinnu og þá sérstaklega sjálfstæðum konum sem kjósa að gera það,“ segir Vigdís.
„Það er ekkert hræðilegra í augum margra en kona sem ákveður að hagnast á eigin líkama. Þetta sama fólk kúgar konur og neyðir þær til að skammast sín fyrir það. Það hvetur einnig til nauðgunarmenningar með því að gera ráð fyrir því að allir stripparar séu bara að gera það útaf einhverri kynlífsþrælkun, sem er svo langt frá raunveruleikanum.“
„Myndbandið á að vera einhvers konar draumaheimur þar sem allir strippararnir eru saman að hafa gaman og fá borgað, en það eru engir viðskiptavinir.“
Vigdís Howser sá um að leikstýra tónlistarmyndbandinu og samdi handritið. Oliver Zimmermann var aðstoðarleikstjóri. Jóhanna Rakel var stílistinn. Þú getur lesið nánar um gerð tónlistarmyndbandsins hér.
„Don‘t Call Me Baby“ er af tilvonandi plötu Vigdísar, Sweet Queen. Platan kemur út í apríl.
„Það verður eitthvað fyrir alla á þessari plötu. „Don‘t Call Me Baby“ er ábyggilega grófasta lagið, en svo eru nokkur tilfinningarík lög um hvernig mér hefur liðið undanfarin tvö ár. Ég hef gengið í gegnum margt,“ segir Vigdís og heldur áfram:
„Í fyrra dóu tveir nánir vinir mínir og ég hef aldrei verið jafn einmana. Ég skrifa mikið um missi og hvaða lærdóm maður getur dregið af því. Þetta verður sannkölluð „in your feels“ plata. Ég er að gera alveg nýja hluti með hana. Eitthvað sem ég hef ekki gert áður. Ég skrifa, rappa og syng um hvernig það er að koma út sem tvíkynhneigð og upplifa sig ekki endilega sem eitt kyn. Kyn hefur alltaf verið mjög flókið fyrirbæri fyrir mér.“
Þú getur fylgst með Vigdísi á Instagram @feverdreamofficial.