fbpx
Föstudagur 22.nóvember 2024
Pressan

Banna íbúum Shenzhen í Kína að borða hunda og ketti

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 3. apríl 2020 07:03

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Yfirvöld í kínversku borginni Shenzhen hafa ákveðið að banna neyslu hunda og katta frá og með 1. maí. Þetta er liður í umfangsmeiri lagabreytingum um neyslu dýrakjöts í kjölfar COVID-19 faraldursins.

Margir vísindamenn hafa bent á að COVID-19 gæti hafa borist í menn frá dýrum. Það rennir stoðum undir þessa kenningu að mörg af fyrstu smittilfellunum í Kína fundust meðal fólks sem hafði verið á dýramarkaði í borginni Wuhan í Hubei-héraðinu.

„Hundar og kettir eru miklu tengdari fólki en önnur dýr því þetta eru vinsæl gæludýr. Bann við neyslu hunda og katta er algengt í þróuðum ríkjum.“

Segir í tilkynningu frá borgaryfirvöldum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Hvíthákarl varð manni að bana

Hvíthákarl varð manni að bana
Pressan
Í gær

Þótti dóttirin vera „of falleg til að geta verið dóttir hans“ – DNA-próf afhjúpaði ótrúlegan sannleikann

Þótti dóttirin vera „of falleg til að geta verið dóttir hans“ – DNA-próf afhjúpaði ótrúlegan sannleikann