Sveinn Andri Sveinsson lögmaður óskar eftir símanúmerinu hjá Samtökum um líkamsvirðingu á Facebook-síðu sinni og deilir frétt af Nútímanum þar sem gamlar forsíður úr Séð og heyrt eru rifjaðar upp. Ein þeirra sýnir Svein Andra fyrir tíu árum síðan en þá var hann nokkuð feitari en nú.
„Að birta þessa 10 ára gömlu hlunkamynd af mér er það ekki fitusmánun? Hvað er númerið hjá Samtökum um líkamsvirðingu?,” skrifar Sveinn Andri á Facebook. Frétt Nútímans fjallaði um Instagram-reikninginn Séð og Heyrt Archives sem birtir gamlar greinar og myndir úr blaðinu fræga.