Októberfest haldið hátíðlega dagana 21.–30. september
Bryggjan brugghús heldur októberfest hátíðlega dagana 21.–30. september með glæsilegum Októberfest matseðli og Októberfest bjór. Bryggjan er brugghús og einstaklega fallegur og skemmtilegur veitingastaður að Grandagarði 8 við Reykjavíkurhöfn, staðurinn var opnaður fyrir tveimur árum og hefur heldur betur getið sér gott orð fyrir einstakt og gott úrval gæða bjóra. Bryggjan er með allt að 12 bjórtegundum á dælu hjá sér og þar af 5–7 tegundir sem þeir brugga sjálfir, en þeir eru þekktir fyrir að leggja mikinn metnað í bjórana sína og fjölbreytni þeirra.
Bryggjan verður að sjálfsögðu með sinn eigin bjór á Októberfest, sem verður kominn á dælu þann 21. september. Þorsteinn hjá Bryggjunni segir Októberfest bjórinn vera amber-bjór, svo hann er rauðari en venjulegur pilsner. „Októberfest bjórinn okkar er af Märzen-ætt, amber-bjór sem er örlítið hærri í alkóhólmagni eins og venjan er með októberfest bjór. Af því Arturo og Andrew, bruggararnir hérna á Bryggjunni Brugghús, eru svo skapandi gátum við ekki neytt þá til að gera þetta nákvæmlega eftir þýskum stöðlum og notuðu þeir amerískan humal í staðinn fyrir þann þýska til þess að gera bjórinn aðeins meira spennandi.“
Októberfest matseðillinn og bjórinn verða í boði alla dagana og hátíðinni lýkur síðan með risaballi laugardagskvöldið 30. september þar sem dj Gullfoss og Stuðmenn gleðja gesti. Þetta er kjörið tækifæri til að lyfta sér upp og fagna haustinu.