fbpx
Laugardagur 27.júlí 2024

Þværð þú þvottinn við 30 eða 40 gráður? Ef svo er þarftu að gæta að einu

Kristján Kristjánsson
Laugardaginn 14. mars 2020 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þværð þú þvottinn við 30 eða 40 gráður? En þværðu stundum við hærri hita? Ef ekki þá þarftu samt að gera það. Það þarf að þrífa þvottavélar minnst fjórum sinnum á ári og helst oftar.

Þetta sagði Vardan Gevorgyan, hjá Whirlpool þvottavélaframleiðandanum, í samtali við Din Side. Hann sagði að þvottavélar séu oftast notaðar til að þvo við 30 eða 40 gráður. Það geri að verkum að bakteríur geti dafnað í þeim og valdi með tímanum súrri lykt.

Hann sagði að bakteríurnar setjist oft yst í tromlu vélanna og að í mörgum sé hún úr plasti sem geri að verkum að erfitt sé að þrífa þær. En það er hægt að koma í veg fyrir þetta að hans sögn. Besta aðferðin er að láta vélarnar þvo tómar við 90 til 95 gráður og það eigi helst að gera reglulega. Einnig eru hreingerningarprógrömm á sumum vélum sem duga vel.

Áður en slík prógrömm eru notuð er gott að hreinsa gúmmíkantinn við hurðina með rökum klút og það sama gildir um hurðina og sápuhólfið.

Hann benti jafnframt á að það geti haft alvarlegar afleiðingar ef þetta er ekki gert. Það geti til dæmis leitt til þess að vatnsleiðslur stíflist og vatn flæði um vélina og það sé ekki hreint vatn. Einnig lengja regluleg þrif líftíma þvottavélanna og það kemur sér auðvitað vel fyrir budduna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Nýnasistar á Norðurlöndum laða að meðlimi í bardagaklúbba – „White Boy Summer Fest“

Nýnasistar á Norðurlöndum laða að meðlimi í bardagaklúbba – „White Boy Summer Fest“
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Eyja með gömlu hervirki til sölu – Fimmtán draugar búa þar

Eyja með gömlu hervirki til sölu – Fimmtán draugar búa þar
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Slot gefur sama svarið: ,,Megið halda áfram að reyna“

Slot gefur sama svarið: ,,Megið halda áfram að reyna“
Pressan
Fyrir 18 klukkutímum

Ættleiddi son fyrrverandi konu eiginmannsins – Móðirin lést með hörmulegum hætti

Ættleiddi son fyrrverandi konu eiginmannsins – Móðirin lést með hörmulegum hætti
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Veðurspáin fyrir versló er komin: Hvar verður besta veðrið?

Veðurspáin fyrir versló er komin: Hvar verður besta veðrið?

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.