Guðmundur Birkir Pálmason kírópraktor opnar í dag nýja kírópraktorstöð í Faxafeni. Guðmundur er löngu orðinn þekktur í þessum bransa og er einn af leiðandi kírópraktorum á Íslandi í dag. Eftir að hafa starfað á Kírópraktorstöð Íslands síðustu fjögur ár ákvað hann að opna sína eigin stöð.
„Mig hefur alltaf dreymt um að eiga og reka mína eigin kírópraktorstöð. Mér fannst núna vera rétti tíminn til þess. Ég er búinn að vera lengi í bransanum og vegnað vel. Núna vil ég taka þetta skrefinu lengra og bjóða enn meiri og betri þjónustu í kringum greiningu og meðhöndlun hjá kírópraktor. Við verðum meðal annars í frábæru samstarfi við Reebok Fitness sem er að opna í sama húsnæði.“
Þetta er þó ekki fyrsta stofa Guðmundar því hann var með stofu í Stokkhólmi sem hann opnaði eftir að hann útskrifaðist í Svíþjóð árið 2010 en þar er hann reglulega með námskeið og kennir bæði nemum og öðrum kírópraktorum sitt fag.
Guðmundur er eini kírópraktorinn á Kírópraktorstöð Reykjavíkur eins og er en hann segir að breyting verði á því í framtíðinni þar sem stefnt sé á að tveir aðrir kírópraktorar komi inn ásamt nuddara og geislafræðingi.
Algengur misskilningur er að fólk þurfi að vera alvarlega slasað til að þurfa að leita til kírópraktors, allir hafa gott af því að heimsækja einn slíkan öðru hverju. Guðmundur segir að hann finni fyrir almennri vakningu hjá fólki gagnvart kírópraktík: „Margir eru að átta sig á hvað við getum gert og það er ekki endilega skilyrði að vera með slæma verki til að fara til kírópraktors. Margir eru farnir að leita til okkar til þess að fyrirbyggja slæma verki. Kírópraktor er sérfræðingur í greiningu og meðhöndlun stoðkerfisvandmála, það er okkar verk að finna og meðhöndla orsökina fyrir því að verkurinn sé að myndast.“
Margt af þekktasta íþróttafólki landsins leitar til Guðmundar og þakkar honum á samfélagsmiðlum en Guðmundur starfaði í meira en áratug sem einkaþjálfari og sameinar því mikið æfingar og teygjur í meðferðum sínum, en hann er einnig í góðu samstarfi við fagfólk í heilbrigðiskerfinu.
Formleg opnun Kírópraktorstöðvar Reykjavíkur er í dag 1. september en hægt er að bóka tíma í gegnum heimasíðu stofunnar kirorvk.is eða í síma 571-9110.