fbpx
Sunnudagur 20.apríl 2025
Fókus

Ótrúlegar sviptingar í veðbönkum – Daða og Gagnamagninu spáð sigri í Eurovision

Fókus
Mánudaginn 2. mars 2020 14:14

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Miklar sviptingar hafa verið í veðbankaspám fyrir Eurovision-keppnina sem fer fram í maí í Rotterdam í Hollandi.

Fyrr í dag var íslenska framlaginu, Daða og Gagnamagninu með Think About Things, spáð þriðja sæti. Nú er Íslandi hins vegar spáð sigri í Eurovision.

Litháen er spáð öðru sæti, en framlagi þeirra On Fire með The Roop var lengi vel spáð sigri. Í þriðja sæti er síðan söngkonan Roxen frá Rúmeníu með lagið Alcohol You.

Það hefur líklega ekki farið framhjá neinum að Daði og Gagnamagnið hafa gert allt vitlaust víðs vegar um Evrópu með laginu Think About Things. Yfirleitt gefa veðbankaspár sem birtast á vefsíðunni Eurovision World rétta mynd af úrslitunum, en hins vegar er ekki búið að velja framlög allra landa og því geta þessa spár breyst mikið áður en kemur að stóru stundinni í maí.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Dimmey Rós og kærastan hennar hafa orðið fyrir fordómum á Íslandi – „Stundum var fólk bara hlæjandi að benda“

Dimmey Rós og kærastan hennar hafa orðið fyrir fordómum á Íslandi – „Stundum var fólk bara hlæjandi að benda“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Flosi hélt lengi að hin fullkomna kona myndi gera hann heilan

Flosi hélt lengi að hin fullkomna kona myndi gera hann heilan
Fókus
Fyrir 3 dögum

Vinsælt kántríband mætir í Hörpu beint frá Royal Albert Hall

Vinsælt kántríband mætir í Hörpu beint frá Royal Albert Hall
Fókus
Fyrir 3 dögum

Daði nær óþekkjanlegur – Stutthærður með alskegg

Daði nær óþekkjanlegur – Stutthærður með alskegg
Fókus
Fyrir 4 dögum

Ólafur var milli lífs og dauða – Kom heim til að deyja en fann sig í að aðstoða aðra – „Stundum hafa komið dalir“

Ólafur var milli lífs og dauða – Kom heim til að deyja en fann sig í að aðstoða aðra – „Stundum hafa komið dalir“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Linda Pé öfundar ekki aðrar konur – „Ég hef oft upplifað þetta gagnvart mér“

Linda Pé öfundar ekki aðrar konur – „Ég hef oft upplifað þetta gagnvart mér“