Svona lítur forsíða The Economist út. Martröð Ameríku – gæti þetta orðið? Þarna er mynd af Donald Trump og Bernie Sanders.
Í leiðara blaðsins er svo fjallað um valkostina sem bandarískir kjósendur gætu staðið frammi fyrir ef forsetaslagurinn verður milli Trumps og Sanders. Þetta áhrifamikla blað hefur aldrei farið leynt með fyrirlitningu sína á Trump. Hrifningin á Sanders er síst meiri.