Fylkir og Víkingur Reykjavík áttust við í Lengjubikarnum í kvöld en þeim leik lauk með 0-2 sigri Víkinga.
Óhugnanlegt atvik átti sér stað í leiknum þegar Halldór Smári Sigurðsson, varnarmaður Víkings fékk þungt höfuðhögg í leiknum og óttuðust margir það versta. Hann lenti í samstuði við Arnór Gauta Ragnarsson, sóknarmann Fylkis.
,,Leikurinn var stöðvaður í um fimmtán mínútur, um tíma hélt óttaðist ég hreinlega um líf Halldórs,“ sagði áhorfandi á vellinum í samtali við 433.is í kvöld.
433.is hefur fengið það staðfest að Halldór sé á batavegi en læknar skoðuðu bæði hann og Arnór í kvöld. Farið var með báða á sjúkrahús eftir atvikið og eru báðir sagðir á batavegi. Líklega þarf Halldór, hið minnsta að taka sér frí um nokkurt skeið enda var höggið sem hann fékk þungt.
Arnór er að hefja sitt annað tímabil með Fylki en Halldór hefur alla tíð spilað með Víkingi og er einn mikilvægasti leikmaður liðsins.