,,Þetta er besta mynd sem ég hef séð,“ sagði Gunnar Helgason leikari og í sama streng tók Eggert Skúlason fjölmiðlagúru um myndina Síðasta veiðiferðin, sem forsýnd var í gær og skemmtu menn og konur sér konunglega á myndinni.
Myndin fjallar um nokkra félaga sem fara að veiða í Mýrarkvísl með nokkur kíló af mat og miklu meira af áfengi í skottinu á bílnum. Ferðin verður hin skrautlegasta í alla staði. Þetta er ágæt æfing fyrir sumarið í veiði.
Meðal leikara í myndinni eru Hilmir Snær Guðnason, Þröstur Leó Gunnarsson, Þorsteinn Bachmann, Hjálmar Hjálmarsson, Jóhann Sigurðarsson og Halldór Gylfason sem standa sig allir vel.
Margir mættu á forsýninguna eins og Gunnar Helgason, Eggert Skúlason, Sigurður Héðinn, Valgerður Baldursson, Nökkvi Svavarsson, Pétur Pétursson, Ingimundur Bergsson, María Gunnarsdóttir, Bjarni Brynjólfsson, Árni Friðleifsson, Ari Hermóður Jafetsson, Jón Þór Ólason, Kristín Edward, Þröstur Elliðason, Björn K. Rúnarsson, Ingvar Þorvaldsson, Jóhannes Hinriksson, Jón Þór Júlíusson, Ingólfur Ásgeirsson, Friðjón Már Sveinbjörnsson, Atli Bergmann, Hilmar Hansson og Sigurþór Gunnlaugsson svo fáir séu nefndir á frábærri sýningu sem sló svo sannarlega í gegn.