fbpx
Þriðjudagur 23.júlí 2024
Eyjan

Hörður -„Verði það tækifæri ekki nýtt þá geta menn bara slökkt ljósin“ – Segir Sólveigu gengna af göflunum

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 21. febrúar 2020 09:44

Hörður Ægisson og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar. Þau eru yfirleitt á öndverðum meiði.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Tíminn vinnur ekki með okkur,“ segir Hörður Ægisson, ritstjóri Markaðarins í leiðara Fréttablaðsins í dag. Hann segir fátt vinna með Íslandi í efnahagsmálum þessa stundina og telur blikur vera á lofti:

„Samtals eru um 9.600 manns á atvinnuleysisskrá og hefur fjöldinn ekki verið meiri frá því í maí 2012. Atvinnuleysi mælist 4,8 prósent og fjölgaði þeim sem voru án atvinnu um rúmlega þúsund í janúar. Það er sambærilegt við það að milljón manns hefðu misst vinnuna í Bandaríkjunum á aðeins einum mánuði. Fátt bendir til annars en að ástandið eigi eftir að versna enn frekar áður en það skánar, en leiðandi hagvísir Analytica, sem gefur vísbendingar um umsvif í hagkerfinu að sex mánuðum liðnum, gefur til kynna talsverðar líkur á stöðnun eða efnahagssamdrætti.“

Gengin af göflunum

Hann segir lítil og meðalstór fyrirtæki berjast í bökkum og gjaldþrot blasi við og stenst ekki freistinguna að senda Eflingu pillu:

„Þessi veruleiki er öllum augljós sem kjósa að setja ekki kíkinn fyrir blinda augað en engu að síður er það mat sumra verkalýðsfélaga að nú sé rétti tíminn til að ganga af göflunum í óumsemjanlegum kröfum sínum á hendur hinu opinbera.“

Hörður telur ljóst að Seðlabankinn muni halda áfram að lækka vexti, en það sé ekki nóg:

„Vandinn, sem er í senn kerfislægur og heimatilbúinn, er að miðlunarferlið er ekki að virka sem skyldi og því hafa fyrirtæki ekki notið ávinnings lægri vaxta. Verði ekkert að gert, meðal annars með ráðstöfunum er lúta að minni eiginfjárkröfum á banka, lækkun bindiskyldu, lægra tryggingagjaldi og stórauknum fjárfestingum ríkisins, verður niðursveiflan dýpri og langvinnari – algjörlega að óþörfu enda hafa stjórnvöld það í hendi sér að snúa við þessari stöðu.“

Lilja vaknaði fyrst

Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, braust óvænt fram á sjónarsvið efnahagsmálanna í gær er hún sagði nauðsynlegt að ríkið hæfi framkvæmdir fyrir tugmilljarða, til að fá innspýtingu inn í kerfið. Báru margir lof á Lilju fyrir að vera sú fyrsta innan ríkisstjórnarinnar til að viðurkenna ástandið og bregðast við:

„Er ríkisstjórnin sofandi? Svo hefur virst að undanförnu en það kann að breytast. Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra hefur með afgerandi hætti nú lýst því yfir að nauðsynlegt sé að bregðast hratt við versnandi efnahagshorfum. Þannig eigi bæði að flýta og auka umfang þeirrar fjárfestingar sem áður hafði verið boðuð í fjármálaáætlun ríkisins, að minnsta kosti um fimmtíu milljarða, og eins sé mikilvægt að lækka eiginfjárauka á viðskiptabankana til að auka útlánagetu þeirra. Taka þarf ákvarðanir um slíkar ráðstafanir, ásamt fleirum, á allra næstu vikum,“

segir Hörður og bætir við að nú hljóti að taka við stefnubreyting, ellegar sé svartnætti fram undan:

„Ný fjármálastöðugleikanefnd sem seðlabankastjóri fer fyrir hlýtur þannig að breyta um kúrs og snúa við fyrri ákvörðunum sem teknar voru á vettvangi kerfisáhættunefndar um að þrengja enn að bankakerfinu með hækkun sveiflujöfnunaraukans ofan á eiginfjárkröfur sem fyrir voru þær hæstu í Evrópu. Ólíkt flestum öðrum ríkjum geta íslensk stjórnvöld, ríkisstjórnin og Seðlabankinn, gripið til fjölmargra aðgerða, á grunni sterkar stöðu þjóðarbúsins, til að skapa forsendur fyrir efnahagslegri viðspyrnu. Verði það tækifæri ekki nýtt þá geta menn bara slökkt ljósin.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Bandarísk stjórnmál: Biden vill koma böndum á Hæstarétt Bandaríkjanna

Bandarísk stjórnmál: Biden vill koma böndum á Hæstarétt Bandaríkjanna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hildur hnyklar brýnnar í áframhaldandi ritdeilu – „Ég trúi varla að ég þurfi að rita enn eina grein­ina“

Hildur hnyklar brýnnar í áframhaldandi ritdeilu – „Ég trúi varla að ég þurfi að rita enn eina grein­ina“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur