fbpx
Þriðjudagur 23.júlí 2024
Eyjan

Ragnar sakar Rio Tinto um bókhaldsbrellur – „Til að græða meira og borga minni skatta“

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 17. febrúar 2020 11:40

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, fjallar um stöðu álversins í Straumsvík, en sem kunnugt er þá segist fyrirtækið standa frammi fyrir miklum rekstrarvanda og íhugar að hætta starfsemi sinni ef ekki tekst að semja við Landsvirkjun um lægra raforkuverð.

Bent hefur verið á að markaðsaðstæður séu einnig stór þáttur í vanda álversins, sem er í eigu risafyrirtækisins Rio Tinto í gegnum Ísal.

Verðlaus eftir áratug

„En hvernig er staðan raunverulega,?“ spyr Ragnar Þór.

„Eftir að hafa skoðað rekstrartölur fyrirtækisins kemur margt áhugavert í ljós. Sérstaklega þegar skoðað er hvaða liðir í rekstri orsaka þetta mikla tap síðastliðin 10 ár. Árið 2011 voru afskriftir 2,77% af eignum og hafa hækkað jafnt og þétt síðustu ár og voru komnar upp í 10,52% af eignum árið 2018 og voru rúmir 45,6 milljónir dollarar það árið á meðan tapið var rúmir 44,6 milljónir dollarar. Þetta þýðir að samkvæmt rekstrarreikningi verður verksmiðjan verðlaus með öllu eftir um 10 ár,“

segir Ragnar og nefnir að tapið liggi að mestu í háum afskriftum, þó vissulega séu markaðsaðstæður slæmar.

Bókhaldsbrellur

Ragnar nefnir að þóknun Ísal til móðurfyrirtækisins árið 2018 hafi verið um tveir milljarðar króna meðan launagreiðslur og launatengd gjöld hafi verið um sex milljarðar króna. Hann segir stöðuna ekki eins slæma og fyrirtækið vilji láta líta út fyrir og því hafi bókhaldið í raun verið svert, en ekki fegrað:

„Ef veltufé frá rekstri er skoðað þá er það jákvætt fyrir öll árin. Þannig er ljóst að fyrirtækið er ekki eins illa statt og búið er að fullyrða í hræðsluáróðri gagnvart starfsfólki og stjórnvöldum. Auk þess tekur móðurfélagið um 2 milljarða í þóknun á hverju ári út úr rekstrinum á Íslandi. Þá er ótalið að fyrirtækið situr beggja megin borðs þegar kemur að hráefniskaupum og sölu afurða sem álverið framleiðir og getur þannig haft áhrif á afkomu þess eftir hentisemi,“

segir Ragnar og bætir við:

„Það er ýmsum brellum beitt til að græða meira og borga minni skatta. Og eru alþjóðleg stórfyrirtæki alræmd í þeim efnum. Ekki er líklegt að Rio Tinto sé undantekning í þeim efnum.“

Ógeðfelldar aðferðir

„Það ógeðfellda í þessu öllu saman er að Rio Tinto neitar að gefa stjórnendum Ísal og SA leyfi til að skrifa undir kjarasamning sem aðilar hafa komið sér saman um og ætla sér að nota starfsfólkið í pólitískri refskák í samningaviðræðum við stjórnvöld og Landsvirkjun. Ógeðfelldari aðferð er ekki hægt að hugsa sér að halda starfsfólki í gíslingu með þessum hætti ásamt gengdarlausum hræðsluáróðri með tilheyrandi óvissu fyrir starfsfólk og fjölskyldur þeirra,“

segir Ragnar ennfremur og nefnir að fresta verði viðræðum um raforkuverðið þangað til samið verður við starfsmenn álversins:

„Ég hef miklar áhyggjur af stöðu stóriðjunnar og vel launuðum störfum sem hún skapar en það eru takmörk fyrir því hvað hægt er að verja. Varðandi samningaviðræður stjórnvalda og LV við Rio Tinto um hugsanlega endurskoðun á raforkusamningi verður að tryggja að slíkum viðræðum verði frestað þangað til búið er að semja við fólkið sem þar starfar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Bandarísk stjórnmál: Biden vill koma böndum á Hæstarétt Bandaríkjanna

Bandarísk stjórnmál: Biden vill koma böndum á Hæstarétt Bandaríkjanna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hildur hnyklar brýnnar í áframhaldandi ritdeilu – „Ég trúi varla að ég þurfi að rita enn eina grein­ina“

Hildur hnyklar brýnnar í áframhaldandi ritdeilu – „Ég trúi varla að ég þurfi að rita enn eina grein­ina“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur