Seinni undanúrslit í Söngvakeppninni 2020 fara fram í Háskólabíói í kvöld þar sem seinni fimm lögin í keppninni í ár verða flutt. Áhorfendur velja tvö lög áfram í úrslitakeppnina með símakosningu. Framkvæmdastjórn keppninnar hefur þó leyfi til að hleypa einu lagi áfram til viðbótar, telji hún það eiga erindi í úrslitin. Ef það gerist verður það tilkynnt í lok útsendingar í kvöld. Það verða því annaðhvort fjögur eða fimm lög sem komast í úrslitakeppnina sem haldin verður í Laugardalshöll 29. febrúar, en síðasta laugardag komust lögin Almyrkvi með Dimmu og Klukkan tifar með þeim Ísold og Helgu áfram.
Auk laganna sem keppa koma söngvararnir Flóni og Elín Ey fram í kvöld en þau munu bæði taka þekkt Eurovisionlög í nýjum útsetningum.
Lögin fimm sem keppa í kvöld eru:
GAGNAMAGNIÐ
Flytjendur: Daði og Gagnamagnið
Kosninganúmer: 900-9901
FELLIBYLUR
Flytjandi: Hildur Vala
Kosningamúmer: 900-9902
OCULIS VIDERE
Flytjandi: Iva
Kosninganúmer: 900-9903
EKKÓ
Flytjandi: Nína
Kosninganúmer: 900-9904
DREYMA
Flytjandi: Matti Matt
Kosninganúmer: 900-9905
Hægt er að hlusta á öll lögin á vefsíðunni songvakeppnin.is.
Sjónvarpað verður beint frá Háskólabíói í kvöld og hefst útsendingin kl. 19.45. Einnig verður hægt að horfa á keppnina á vefnum: https://www.ruv.is/sjonvarp/beint?channel=ruv