Það var Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir, dagskrárgerðarkona á Rás 2 og blaðamaður á Læknablaðinu, sem kærði ráðninguna en hún sótti einnig um starfið. Í úrskurði kærunefndar segir að nægar líkur hafi verið leiddar að því að Gunnhildi hafi verið mismunað á grundvelli kyns við ráðninguna. Auk þess segir nefndin að Seðlabankinn hafi ekki sýnt fram á að Stefán Rafn hafi verið hæfari en Gunnhildur fyrir starfið.
Seðlabankinn sagði að ferlið á umsóknum hafi verið mjög vandað og því taldi bankinn kæruna verið tilefnislausa. Gunnhildur sagði að huglægt mat Seðlabankans hafi verið ósanngjarnt þar sem hann sé með minni menntun en hún auk þess sem hann er með mun minni reynslu. Úrskurðað var í málinu þann 19. desember en úrskurðurinn var ekki birtur fyrr en nú. Þar má sjá menntun þeirra og reynslu borna saman en kærunefnd segir að það liggi fyrir að Gunnhildur stendur framar Stefáni þegar kemur að menntun og reynslu af kynningarstarfi.
Þetta er í þriðja sinn sem Seðlabankinn brýtur jafnréttislög síðan 2012 en þá var bankinn talinn hafa brotið lög þegar ráðið var karl í stöðu sérfræðings í lánamálum ríkisins hjá bankanum. Árið 2015 braut bankinn lögin aftur þegar upp komst að kona hafi fengið lægri laun en karl sem hafi sömu menntun og svipaða reynslu.