Lorde gaf út plötu í júní eftir næstum fjögurra ára bið. Hún gaf út plötuna Pure Heroine árið 2013 og naut platan gífurlega vinsælda. Á plötunni eru lög eins og „Royals“ og „Tennis Court“ sem trónuðu lengi á topplistum um allan heim.
Lorde byrjaði á því að gefa út lagið „Green Light“ í mars og tónlistarmyndband með. Aðdáendur voru óðir í meira efni og fögnuðu þegar platan Melodrama kom út í júní.
Sjá einnig: Lorde var að gefa út nýja plötu eftir næstum fjögurra ára bið – Netverjar missa sig
Hún var gefa nýtt myndband við lagið „Perfect Places“ en hún hefur verið að byggja upp spennuna síðastliðna viku á Instagram. Hún segir meðal annars í einni færslunni að myndbandið er heimur sem hana dreymdi og lífgaði við með frábæru fólki sem vann að gerð myndbandsins.
https://www.instagram.com/p/BXOg_dVH3Ek/
https://www.instagram.com/p/BXRKKXbndNt/
https://www.instagram.com/p/BXWINXPHjXJ/