fbpx
Mánudagur 22.júlí 2024
Fréttir

Yngri bróðirinn vissi lítið um tilgang ferðarinnar til Íslands – Dæmdir í samtals 9 ára fangelsi

Ritstjórn DV
Föstudaginn 3. janúar 2020 13:07

Málið er í rannsókn.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt tvo karlmenn í fangelsi fyrir innflutning á töluverðu magni af kókaíni til landsins. Talið er að mennirnir hafi verið burðardýr, að því er segir í dómi.

Sorin Sarban var dæmdur í fimm ára fangelsi en bróðir hans, Georgian-Alin Sarban, fékk fjögurra ára dóm. Báðir dómarnir eru óskilorðsbundnir.

Mennirnir voru stöðvaðir í Leifsstöð þann 11. september síðastliðinn við komuna frá Dusseldorf í Þýskalandi. Við leit í farangri Georgian fundust tæplega 2,5 kíló af kókaíni og í fórum Sorin fundust tæplega 3 kíló af kókaíni. Efnin voru að meðaltali 85-86% að styrkleika.

Mennirnir játuðu báðir sök fyrir dómi þegar málið var þingfest þann 20. desember síðastliðinn. Í dómi segir að fyrirliggjandi gögn bendi til þess að þeir hafi verið burðardýr, ekki eigendur fíkniefnanna eða tekið þátt í skipulagningu á kaupum og innflutningi þeirra. Þeir hafi í raun aðeins samþykkt að flytja efnin til landsins gegn greiðslu.

Í dómi segir:

„Af framburði ákærða Sorin má og ráða að hann hafi fengið ungan bróður sinn, meðákærða Georgian-Alin, til aðstoðar við innflutning  efnanna  og  meðákærði  lítið  vitað  um raunverulegan  tilgang  ferðarinnar. Verður litið til þessara atriða við ákvörðun refsingar, sem og til játningar beggja ákærðu og  ungs  aldurs  ákærða  Georgian-Alin,en  hann  var  aðeins  19  ára  á  brotadegi. Á  hinn bóginn verður ekki framhjá því horft að ákærðu frömdu umrætt brot í félagi, sbr. 2. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940og fluttu til landsinsverulegt magn af sterku kókaíni,  sem  ætlað var til  söludreifingar  hér  á landi.  Að  öllu  þessu  virtu  þykir  refsing ákærða  Georgian-Alin  hæfilega  ákveðin  fangelsi  í fjögur ár  og  refsing  ákærða Sorin fangelsi í fimm ár.“

Til frádráttar kemur gæsluvarðhald sem bræðurnir sættu frá 12. september síðastliðnum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Flugi til Íslands aflýst vegna bilunar á síðustu stundu – Vélin var komin út á flugbrautina

Flugi til Íslands aflýst vegna bilunar á síðustu stundu – Vélin var komin út á flugbrautina
Fréttir
Í gær

Gestrisni Íslendinga kom spænsku pari gríðarlega á óvart – „Þetta fólk þekkti okkur ekki neitt“

Gestrisni Íslendinga kom spænsku pari gríðarlega á óvart – „Þetta fólk þekkti okkur ekki neitt“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Costco reiknar ekki með að „heimsendafatan“ verði til sölu hérlendis – Aðeins ákall neytenda gæti breytt því

Costco reiknar ekki með að „heimsendafatan“ verði til sölu hérlendis – Aðeins ákall neytenda gæti breytt því
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Árásin á Yönu og fjölskyldu hennar – Emmanuel gekkst undir langa aðgerð í gær

Árásin á Yönu og fjölskyldu hennar – Emmanuel gekkst undir langa aðgerð í gær
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Flutningur ráðuneytanna langt kominn í glæsihýsið við Austurbakka – Óvíst um endanlegan kostnað

Flutningur ráðuneytanna langt kominn í glæsihýsið við Austurbakka – Óvíst um endanlegan kostnað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Bandarískur blaðamaður dæmdur í 16 ára fangelsi fyrir njósnir í Rússlandi

Bandarískur blaðamaður dæmdur í 16 ára fangelsi fyrir njósnir í Rússlandi