Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, sendir frá sér óvenjulega jólakveðju í ár, sem birtist í myndbandi á samfélagsmiðlum. Þar svarar hún einnig einni af mikilvægustu spurningu kristindómsins.
Í byrjun myndbandsins hljómar aðventulag Baggalúts frá árinu 2005, Sagan af Jesúsi, við óviðjafnanlegan texta Braga Valdimars Skúlasonar, en lagið er þýskt að uppruna og heitir Keeping The Dream Alive með hljómsveitinni Münchener freiheit.
Í kveðju sinni segir Agnes:
„Ég var spurð að því um daginn hvort það færi ekki í taugarnar á mér að Jesús væri kallaður Sússi í vinsælu jólalagi Baggalúts.“
Hún svarar því síðan til að nafnið sjálft sé ekki heilagt:
„Ég svaraði því til að mér finndist lagið nokkuð gott, þess utan leiddi spurningin að enn mikilvægari spurningu, hvað er það sem skiptir máli þegar kemur að kjarna trúarinnar? Hvað er það í boðskap Jesú Krists sem stendur óbifað hvað sem mannanöfnun og viðurnefnum líður ? Því er til að svara og hefur aldrei verið mikilvægara; kærleikur, friður og andleg fullnægja hvers og eins.
Nafnið er hvorki heilagt né fylgir því hjálpræði. Emmanúel, Jesús, eða Sússi ef nafnið leiðir okkur að kjarna trúarinnar, og minnir okkur á anda jólanna, þá sef ég róleg. Baggalútur heldur áfram að syngja og við leggjum rækt við það sem öllu máli skiptir, okkar andlegu velferð. Mín fyrirbæn til þín er að þú eigir gleði og friðarjól með þeim sem þú elskar mest. Gleðileg jól.”