,,Það var bara fín mæting hjá okkur á opið hús, líklega um 80 mættu á svæðið,“ sagði Hörður Heiðar Guðbjörnsson í skemmtinefnd Stangaveiðifélags Reykjavíkur en opið hús var á föstudaginn.
,,Dagskráin var fjölbreytt og allir sáttir og næsta opna hús hjá okkur verður fyrir ungaveiðimenn í byrjun febrúar,“ sagði Hörður i lokin.
Margir eru byrjaðir að hnýta fyrir næsta sumar, hvort sem þeir gera það einir eða með fleirum veiðimönnum. Biðin styttist,
Mynd. Hressir veiðimenn á Opnu húsi á föstudaginn. Mynd HHG.